Sif Sigfúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 17:32 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 17:32 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sif

Sif Sigfúsdóttir mannauðsfræðingur fæddist 16. nóvember 1967 í Eyjum. Foreldrar hennar eru Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930, d. 2006, og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.

Maki I, barnsfaðir: Bjarni Þór Júlíusson, f. 2. nóv. 1966 í Rvk.
Foreldrar: Júlíus Ragnar Júlíusson múrari, f. 1932 og k.h. Jónína Steinunn Þorsteinsdóttir sundlaugarstarfsmaður, f. 1936.
Barn: Kristín Mjöll, f. 13. febr. 1990.

Maki II: Búi Kristjánsson myndlistarmaður, f. 29. júlí 1961 í Ólafsfirði.
Foreldrar: Kristján Búason dósent við Háskóla Íslands, f. 1932 og k.h. Erla Gróa Guðjónsdóttir húsmóðir, f. 1932.
Börn: Telma Sif, f. 11. apríl 2000, Hildur Björk, f. 29. maí 2004.
Stjúpbörn (börn Búa): Haukur Þór, f. 16. marz 1981; Birgir Hrafn, f. 30. jan. 1984; Arnar Már, f. 24. jan. 1987.

Nám og störf

Sif varð stúdent 1988, lauk BA-prófi í ensku við Háskóla Íslands, lærði markaðs-og útflutningsfræði við endurmenntunarstofnun HÍ 2001, lauk mastersprófi (MA) í mannauðsstjórnun 2005 og fékk kennsluréttindi frá Kennaraháskólanum 2006. Hún er varaborgarfulltrúi í Reykjavík frá 2006 til 2010 og sat í ýmsum nefndum á vegum borgarstjórnar. Frá 2010 er hún formaður Hagstundar, hagsmunafélags kennara á háskólastigi.

Þegar hún var átján ára, var hún kjörin fegurðardrottning Norðurlanda.


Heimildir