Sandur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. nóvember 2019 kl. 21:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. nóvember 2019 kl. 21:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Sandur stóð við Strandveg 63. Þar er nú hús Tryggingamiðstöðvarinnar.

Á Sandi bjó m.a. á síðustu öld Haraldur Sigurðsson, faðir Rúriks leikara. Haraldur var meðal annars þekktur að því að brugga afbragðsgóðan landa. Á Brimhólum bjó Hannes Sigurðsson bóndi og var m.a. formaður Búnaðarfélags Vestmannaeyja. Hann var í góðum tengslum við búnaðarsambönd á Norðurlöndum. Eitt sinn kom bréf frá Danmörku á pósthúsið í Eyjum og var utanáskriftin þessi:

Hr. landbruger H. Sigurðsson
Vestmannaeyjum

Bréfið var umsvifalaust borið út til Haraldar á Sandi.