Sandra Kolbrún Ísleifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2020 kl. 20:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2020 kl. 20:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sandra Kolbrún Ísleifsóttir''' húsfreyja, verkstjóri fæddist 30. ágúst 1937 á Hásteinsvegi 5.<br> Foreldrar hennar voru Ísleifur Magnússon frá...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sandra Kolbrún Ísleifsóttir húsfreyja, verkstjóri fæddist 30. ágúst 1937 á Hásteinsvegi 5.
Foreldrar hennar voru Ísleifur Magnússon frá London, vélstjóri, f. 26. ágúst 1905, d. 21. nóvember 1966, og sambýliskona hans Arnbjörg Magnúsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 18. mars 1912, d. 16. febrúar 1998.

Sandra var með foreldrum sínum í London, síðar með móður sinni og Engilbert.
Hún starfaði snemma við fiskvinnslu, varð verkstjóri hjá Fiskiðjunni.
Þau Guðmundur Vignir giftu sig 1959, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Franska spítalanum við Kirkjuveg 20 í byrjun, í London við giftingu og við Gos 1973.
Guðmundur Vignir lést 1978. Sandra bjó síðar á Dverghamri 61, en býr nú við Sólhlíð 21.

I. Maður Söndru Kolbrúnar, (31. desember 1959), var Guðmundur Vignir Sigurðsson frá Helli, vélstjóri, f. 20. desember 1933, d. 5. nóvember 1978.
Börn þeirra:
1. Ísleifur Arnar Vignisson starfsmaður Vinnslustöðvarinnar, f. 31. janúar 1954. Kona hans Hulda Ástvaldsdóttir.
2. Sigurður Vignir Vignisson vélstjóri, f. 13. desember 1954. Kona hans Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir.
3. Aníta Sif Vignisdóttir snyrtifræðingur, f. 14. október 1961 í London. Maður hennar Þórður Svansson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.