Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2012 kl. 19:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2012 kl. 19:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Reimleikar í Yztakletti (JGÓ) færð á Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Reimleikar í Yztakletti (JGÓ))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


Reimleikar í Yztakletti.


Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugadóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utan dyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn úti fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
(Almenn sögn).