Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Höskuldur í Elliðaey (JGÓ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.


Höskuldur í Elliðaey.


Einhvern tíma, fyrir löngu, var margt fólk við slátt í Elliðaey. Meðal þess var vinnukona ein, sem hét Guðrún Höskuldsdóttir. Var það í almæli að kona þessi færi ekki ein saman, og hafi orðið léttari meðan hún var í Elliðaey um sláttinn. Bar hún barnið út og faldi það í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautaréttinni. Útburður þessi var nefndur Höskuldur, eftir föður móðurinnar, og hellirinn síðan Höskuldarhellir, því að útburðurinn hafðist þar við.
Útburður þessi gjörði lundamönnum og sláttumönnum ónæði með væli sínum á nóttum, einkum þó þegar gekk að með illviðri. Heyrðist þá útburðarvælið frá hellinum langt að.
(Sögn Gísla Lárussonar í Stakkagerði)