Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Höskuldur í Elliðaey (JGÓ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2012 kl. 16:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2012 kl. 16:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Höskuldur í Elliðaey (JGÓ) færð á Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Höskuldur í Elliðaey (JGÓ))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


Höskuldur í Elliðaey.


Einhvern tíma, fyrir löngu, var margt fólk við slátt í Elliðaey. Meðal þess var vinnukona ein, sem hét Guðrún Höskuldsdóttir. Var það í almæli að kona þessi færi ekki ein saman, og hafi orðið léttari meðan hún var í Elliðaey um sláttinn. Bar hún barnið út og faldi það í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautaréttinni. Útburður þessi var nefndur Höskuldur, eftir föður móðurinnar, og hellirinn síðan Höskuldarhellir, því að útburðurinn hafðist þar við.
Útburður þessi gjörði lundamönnum og sláttumönnum ónæði með væli sínum á nóttum, einkum þó þegar gekk að með illviðri. Heyrðist þá útburðarvælið frá hellinum langt að.
(Sögn Gísla Lárussonar í Stakkagerði)