Símon Bárðarson (Garðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. apríl 2021 kl. 10:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. apríl 2021 kl. 10:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Símon Bárðarson''' frá Holti í Álftaveri, sjómaður fæddist þar 7. mars 1914 og lést 10. maí 1981.<br> Foreldrar hans voru Bárður Pálsson bóndi, f. 27. júní 1872...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Símon Bárðarson frá Holti í Álftaveri, sjómaður fæddist þar 7. mars 1914 og lést 10. maí 1981.
Foreldrar hans voru Bárður Pálsson bóndi, f. 27. júní 1872 í Jórvík í Álftaveri, d. 13. maí 1935 í Holti, og kona hans Sigríður Jónsson húsfreyja, f. 24. september 1876 í Hrífunesi í Skaftártungu, d. 18. febrúar 1953 í Jórvík.

Símon var hjá foreldrum sínum í Holti í æsku.
Hann flutti til Eyja 1939, varð sjómaður.
Þau Þórhildur giftu sig 1940, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Garðhúsum við Kirkjuveg 14 1940, á Vesturvegi 14 1945, á Hásteinsvegi 28 1949, Sóleyjargötu 5 1972 og 1979.
Símon lést 1981 og Þórhildur 1988.

I. Kona Símonar, (1940), var Þórhildur Bárðardóttir frá Ljótarstöðum í Skaftártungu, V.-Skaft., f. 8. júní 1916, d. 6. júlí 1988.
Börn þeirra:
1. Birgir Símonarson, f. 16. september 1940 í Garðhúsum. Kona hans Klara Bergsdóttir, látin.
2. Jóna Sigrún Símonardóttir húsfreyja, f. 15. ágúst 1945, d. 11. nóv. 1996. Maður hennar Eðvarð Þór Jónsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.