Rósa Runólfsdóttir (Hólatungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. desember 2018 kl. 18:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. desember 2018 kl. 18:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Rósa Runólfsdóttir húsfreyja í Hólatungu fæddist 9. nóvember 1909 í Norður-Vík í Mýrdal og lést 25. apríl 1948.
Foreldrar hennar voru Soffía Guðfinna Runólfsdóttir, f. 21. apríl 1890, d. 4. október 1982 og barnsfaðir hennar Runólfur Jónsson vinnumaður, f. 3. september 1867, d. 12. júní 1943.

Rósa var með móður sinni í Norður-Vík til 1912, á Prestbakka 1912-1914, í Vík 1914-1915, í Norður-Vík 1915-1919, var fósturbarn hjá ömmu sinni í Vík 1919-1925, vinnukona í Suður-Vík 1925-1929, í Reykjavík 1929-1932. Hún fluttist til Eyja 1932, gifti sig Stefáni á þvi ári. Hún lést 1948.
Þau hjón bjuggu í Hólatungu, (Hólagötu 7).

Maður Rósu, (10. desember 1932), var Stefán Guðjónsson verkamaður, f. 8. maí 1904, d. 4. nóvember 1987.
Börn þeirra voru:
1. Ingveldur Stefánsdóttir húsfreyja í Hólatungu, síðast í Kópavogi, f. 1. ágúst 1932, d. 24. október 1999. Maður hennar var Rögnvaldur Bjarnason lögregluþjónn, f. 3. janúar 1932, d. 26. nóvember 2002.
2. Guðjón Stefánsson trésmíðameistari, Hólagötu 48, f. 7. janúar 1936. Kona hans er Erna Tómasdóttir húsfreyja frá Efra-Hvoli, f. 29. desember 1937.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.