Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2019 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2019 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir bústýra frá Ofanleiti fæddist 2. nóvember 1854 í Nöjsomhed og lést 13. janúar 1880 í Frydendal.
Faðir Rósu var Brynjólfur Jónsson prestur í Eyjum, búandi í Nöjsomhed 1853-1861, síðan að Ofanleiti; alþingismaður 1859 og 1863, f. 8. september 1826 á Hofi í Álftafirði í S-Múl., d. 19. nóvember 1884 að Ofanleiti, Jónsson prests að Hofi, f. 9. nóvember 1798 að Stafafelli í Lóni, d. 16. ágúst 1843 á Hofi, Bergssonar prests og prófasts að Stafafelli 1797-1824, f. í ágúst 1772, d. 28. október 1837, Magnússonar, og konu sr. Bergs (1797), Guðrúnar húsfreyju og prestkonu, f. um 1764, d. 10. september 1849, Jónsdóttur.
Móðir sr. Brynjólfs og kona sr. Jóns Bergssonar var (29. ágúst 1824, fyrri maður hennar) Rósa húsfreyja og prestkona, f. 12. október 1802 í Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., d. 2. júní 1856 á Þingmúla í Skriðdal á Héraði, Brynjólfsdóttir prests og prófasts í Eydölum, f. 8. september 1757, d. 30. júlí 1825, Gíslasonar, og konu sr. Brynjólfs Gíslasonar, (1785), Kristínar húsfreyju og prestkonu, f. 1761, d. 15. október 1842, Nikulásdóttur.

Móðir Rósu og kona sr. Brynjólfs var Ragnheiður húsfreyja að Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921, Jónsdóttir verslunarstjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð á Suður-Ströndum, f. 1771 í Vík í Lóni, d. 27. júlí 1846, Salómonssonar bónda í Vík og Hraunkoti í Lóni, S-Múl., f. (1740), Jónssonar, og konu Salómons Jónssonar í Vík, Guðrúnar húsfreyju, f. 1735, Konráðsdóttur.
Móðir Ragnheiðar prestkonu að Ofanleiti og síðari kona, (31. október 1818), Jóns Salómonssonar verslunarstjóra var Sigríður húsfreyja, f. 1788, d. 6. desember 1859, Benediktsdóttir bónda á Dvergsstöðum, Grísará og Munkaþverá, f. 1759, d. 9. júní 1823, Þorvaldssonar, og konu Benedikts, Sigríðar húsfreyju, f. 1756, Sigurðardóttur.

Börn Ragnheiðar og Brynjólfs:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 2. nóvember 1854 í Nöjsomhed, d. 13. janúar 1889.
2. Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 14. ágúst 1856 í Nöjsomhed, d. 16. nóvember 1906.
3. Jóhanna Kristjana Brynjólfsdóttir, f. 23. desember 1858 í Nöjsomhed, d. 13. mars 1860 úr „hósta, kvefsótt“.
4. Gísli Brynjólfsson læknir í Danmörku, f. 3. mars 1861 í Nöjsomhed, d. 18. september 1930.
5. Jóhanna Brynjólfsdóttir vinnukona á Löndum, f. 1. júlí 1863 að Ofanleiti, d. 24. júlí 1900.
6. Kristín Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Stað í Grunnavík, f. 20. apríl 1865 að Ofanleiti, d. 19. nóvember 1918.
7. Sigríður Brynjólfsdóttir, fór til Vesturheims, f. 10. september 1868, d. 6. nóvember 1932. Maður hennar var Páll Símonarson
8. Ingibjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Prestbakka á Síðu, f. 26. febrúar 1871 að Ofanleiti, d. 12. maí 1920.

Rósa Jóhanna Sigríður var elst barna prestshjónanna, var með þeim til ársins 1878, en var bústýra í Frydendal 1879. Rósa var heitbundin Einari Árnasyni frá Vilborgarstöðum.
Hún lést í Frydendal 1880 úr sullaveiki.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.