Round Table 11

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Klúbburinn Round Table 11, Vestmannaeyjar var stofnaður formlega þann 12. apríl 1997. Móðurklúbburinn, RT-3 úr Reykjavík, hélt þann dag aðalfund sinn í Vestmannaeyjum, og fór formleg stofnun vestmanneyska klúbbsins fram á þeim fundi. Viðstaddir voru fulltrúar frá flestum klúbbum á landinu, ásamt nokkrum Norðmönnum úr Round Table klúbbi númer 11 þar í landi, sem er í Trondheim. Stofnfélagar klúbbsins voru Aðalsteinn Baldursson, Björgvin Arnaldsson, Elías J. Friðriksson, Hlynur Stefánsson, Heiðar Hinriksson, Ólafur Þór Snorrason og Sigurður Árnason.

RT-11 var formlega tekinn inn í Round Table Ísland á aðalfundi/árshátíð RTÍ sem haldinn var þann 25. apríl 1997 í Skíðaskálanum í Hveradölum.

Starf Round Table í Vestmannaeyjum einkennist af miklum umræðum, uppákomum og ferðalögum, en meðlimir hafa farið í ferðir til klúbba í Noregi, Danmörku, Skotlandi, Suður Afríku og Englandi, ásamt því að hafa fengið í heimsókn RT félaga frá hinum ýmsu löndum.

Starf Round Table klúbba snýst að mjög miklu leyti um innanlands- og alþjóðasamstarf. Þegar RT félagar eru að ferðast, hvort sem er fyrir hreyfinguna, eða persónulega, þá er hægt að hafa samband við félaga í viðkomandi landi eða borg, og fá gistingu heima hjá einhverjum félaga án nokkurra vandræða. Við þetta myndast náið samband milli viðkomandi félaga og fjölskyldna, sem bæði félagar og klúbbar njóta góðs af. Einnig hafa landshreyfingar hinna ýmsu landa í boði ferðir sem félagar út um allan heim geta komist í, og geta þannig kynnst landi og þjóð á mun nánari hátt en ella.

Formenn RT-11


Tenglar