Jens Kristinsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 11:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 11:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jens Kristinsson.

Kynning.

Jens Kristinsson sjómaður, beitningarmaður, verkamaður fæddist 13. september 1922 og lést 12. júní 2015.
Foreldrar hans voru Kristinn Ástgeirsson á Miðhúsum, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981, og kona hans Jensína María Matthíasdóttir, f. 16. febrúar 1892 í Kvívík í Færeyjum, d. 28. maí 1947.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Jens er ógiftur (1954, nóvember) og barnlaus.
Jens er lágur vexti, og smávaxinn, ljóshærður, skapléttur og skemmtilegur. Hann er snar og léttur í hreyfingum, fylginn sér og þolinn. Veiðimaður er Jens ágætur, enda þótt ungur sé í þeirri íþrótt, góður viðlegufélagi og ósérhlífinn og iðinn.
Eflaust á Jens eftir að þjálfast meir í veiðum og verða skeinuhættur keppinautur þeirra, sem eldri og æfðari eru í veiðistörfum.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.