Ritverk Árna Árnasonar/Gísli Þórðarson (Dal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2016 kl. 15:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2016 kl. 15:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Gísli Þórðarson.
Rannveig og Gísli Þórðarson með Gísla son sinn.

Gísli Þórðarson vélstjóri í Dal, fæddist 10. júní 1896 í Ámundakoti í Fljótshlíð, fórst með vélbátnum Má VE-128 13. febrúar 1920.
Gísli var sonur Þórðar bónda á Tjörnum u. Eyjafjöllum, í Ámundakoti í Fljótshlíð og Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. 20. ágúst 1853, d. 21. október 1901, Loftssonar, og konu Þórðar Loftssonar Kristólínu Gísladóttur frá Miðey í A-Landeyjum, húsfreyju, f. í Miðey 23. október 1859, d. 12. mars 1937 í Eyjum. (Sjá Guðbjörgu Þórðardóttur).

Kona Gísla var Rannveig Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1895, d. 19. október 1970.
Börn þeirra Gísla og Rannveigar voru:
1. Bertha húsfreyja frá Dalbæ, f. 5. febrúar 1920, d. 23. apríl 2012, kona Martins Tómassonar, f. 17. júní 1915, d. 1. janúar 1976.
2. Magnús Gísli Gíslason kaupmaður, f. 22. nóvember 1817, d. 9. október 1980.
Rannveig átti síðar (2. september 1922) Harald Viggó Björnsson bankastjóra Útvegsbankans í Vestmannaeyjum, f. 30. október 1889, d. 14. mars 1946. Þau voru barnlaus.

Kristólína Gísladóttir og Þórður Loftsson voru einnig foreldrar:
1. Magnúsar Þórðarsonar formanns í Dal, f. 19. september 1879, fórst 14. janúar 1915. Kona hans var Ingibjörg Bergsteinsdóttir húsfreyja í Dal,
2. Jóhönnu Guðrúnar húsfreyju í Vestra Stakkagerði, f. 2. apríl 1882, d. 3. september 1923, konu Bernótusar Sigurðssonar formanns í Stakkagerði,
3. Kristínar á Borg húsfreyju, f. 29. febrúar 1888, d. 14. mars 1948, konu Sigurjóns Högnasonar skrifstofustjóra á Borg,
4. Ágústs Þórðarsonar fiskimatsmanns á Aðalbóli, f. 22. ágúst 1893, d. 26. ágúst 1977, sem kvæntur var Viktoríu Guðmundsdóttur húsfreyju á Aðalbóli og
5. Guðbjargar Þórðardóttur húsfreyju, f. 31. ágúst 1894, d. 4. desember 1984, konu Árna Þórarinssonar hafnsögumanns frá Oddsstöðum.

Gísla er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.