Ritverk Árna Árnasonar/Bergmundur Arnbjörnsson (Nýborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. janúar 2019 kl. 11:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. janúar 2019 kl. 11:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bergmundur Arnbjörnsson.

Kynning.
Bergmundur Arnbjörnsson sjómaður, bræðslumaður fæddist 17. október 1884 í Klöpp og lést 21. nóvember 1952.
Faðir hans var Arnbjörn bóndi í Prestshúsum, f. 18. apríl 1853 að Reynisholti í Mýrdal Ögmundsson bónda þar og var Ögmundur í Landakoti hér og Jón faðir Þóru í Dalbæ bræður Arnbjörns.
Kona Arnbjörns og móðir Bergmundar var Elísabet, f. 5. desember 1857, dóttir Bergs bónda Magnússonar, er hrapaði í Dufþekju 23. ágúst 1866 og var bróðir Ólafs skálds í Nýborg, en móðir Elísabetar var Sigþrúður Ormsdóttir á Vilborgarstöðum.

Bergmundur var bróðir
1. Þorbjörns Arnbjörnssonar á Reynifelli,
2. Ágústu Arnbjörnsdóttur húsfreyju í Hvíld við Faxastíg, konu Kristins Jónssonar á Tanganum og
3. Guðbjargar Arnbjörnsdóttur, f. 22. desember 1891, d. 18. maí 1944.

Bergmundur var 7 ára með foreldrum sínum í Jómsborg 1890, 18 ára með þeim í Presthúsum 1901.
Við manntal 1910 var Bergmundur sjóróðrarmaður í Brautarholti með bústýruna Elínu Helgu. Þau giftu sig 1. janúar 1911, bjuggu í Brautarholti við fæðingu Laufeyjar 1911, í Presthúsum í lok árs 1912, í Götu 1913 og 1914, á Kirkjubæ 1915 og 1916, á Strönd 1917 og enn 1919, í Sjávargötu 1920 og enn 1930.
Þau bjuggu í Stakkholti 1934, á Faxastíg 8 A 1940 og 1945, voru komin í Nýborg 1949 og bjuggu þar síðan.
Bergmundur lést 1952 og Elín Helga 1963.

Kona Bergmundar, (1. janúar 1911), var Elín Helga Björnsdóttir húsfreyja, f. 19. maí 1888 að Tjarnarlandi á Héraði, en flutti að Brautarholti 1910 frá Norðfirði, d. 7. ágúst 1963.
Börn Bergmundar og Elínar:
1. Laufey Bergmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 1. apríl 1911 í Brautarholti, d. 21. júní 1996.
2. Guðrún Hildur Bergmundsdóttir, f. 1. júní 1912 í Presthúsum, d. 1. júlí 1913 í Götu.
3. Helga Bergmundsdóttir húsfreyja á Patreksfirði, f. 17. júlí 1913 í Götu, d. 26. apríl 1952.
4. Björn Bergmundsson sjómaður, verkamaður í Eyjum, f. 26. september 1914 í Götu, d. 26. mars 1981.
5. Elísabet Sigþrúður Bergmundsdóttir húsfreyja á Norðfirði, f. 21. mars 1916 á Kirkjubæ, d. 10. júlí 1981.
6. Aðalbjörg Jóhanna Bergmundsdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 27. desember 1919 á Strönd, d. 8. september 2003.
7. Guðbjörg Bergmundsdóttir húsfreyja á Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, f. 15. nóvember 1922 í Sjávargötu, d. 10. október 2014.
8. Ása Bergmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, á Dalvík og í Reykjavík, f. 2. maí 1926 í Sjávargötu, d. 28. nóvember 2004.
Fósturbörn Bergmundar og Elínar:
9. Birna Berg Bernódusdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður í Hafnarfirði, dóttir Aðalbjargar, f. 8. september 1938 í Stakkholti.
10. Bergmundur Elli Sigurðsson trésmiður í Hafnarfirði, sonur Ásu, f. 15. apríl 1948.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Bergmundur var allhár maður og þrekinn, dökkhærður, breiðleitur, sterkur vel og fylginn sér í störfum og átökum. Hann var stilltur maður og gætinn, fremur daufgeðja en ræðinn og góður heim að sækja. Gagnvart fjöldanum var hann fremur til baka og naut sín best í vinahópi. Á fyrri árum var hann töluvert við veiðar, áhugasamur og þrautseigur. Veiðimaður var hann vart meir en meðalgóður en vann sig upp með ástundun og þolinmæði.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.