Ritverk Árna Árnasonar/Haraldur Eiríksson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Haraldur Eiríksson.

Kynning
Haraldur Eiríksson, Vegamótum, fæddist 21. júní 1896 og lést 7. apríl 1986.
Hann var sonur Eiríks barnakennara á Vegamótum, fæddur 11. ágúst 1856, dáinn 5. apríl 1931, Hjálmarssonar bónda í Rotum, fæddur um 1820, dáinn 1904, Eiríkssonar og konu hans Sigurbjargar Rannveigar, fædd 24. nóvember 1864, dáin 28. október 1945, Pétursdóttur af Suðurnesjum Ólafssonar.

Föðursystkini Haraldar voru m.a. þessi:
1. Þórunn Hjálmarsdóttir húskona á Lágafelli, fyrr húsfreyja á Ljótarstöðum, kona Sigurðar Sigurðssonar bónda þar, fædd 13. ágúst 1853 á Ketilsstöðum í Mýrdal og lést 15. janúar 1938 í Skammadal þar.
2. Þorgerður Hjálmarsdóttir húsfreyja í Dölum, f. 4. júní 1855 á Ketilsstöðum, d. 2. mars 1939 í Eyjum, kona Jóns Gunnsteinssonar bónda.
3. Hjálmrún Hjálmarsdóttir vinnukona, síðar ráðskona í Reykjavík, f. 16. mars 1878, d. 9. mars 1950. Sambýlismaður hennar var Sigurður Sigmundsson frá Kotströnd í Ölfusi, verkamaður í Reykjavík.
4. Guðrún Hjálmarsdóttir húsfreyja á Akri, f. 12. apríl 1879 á Efri-Rotum, d. 23. september 1928 í Eyjum, kona Guðmundar Þórðarsonar vélstjóra og útgerðarmanns.
5. Helgi Hjálmarsson, – að Hamri, f. 13. október 1880 á Efri-Rotum, d. 6. apríl 1876. Konur hans voru Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja og Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja.
6. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja í Oddhól, f. 6. september 1884 á Efri-Rotum, d. 15. ágúst 1937, kona Ólafs Guðmundssonar verkamanns.

I. Kona Haraldar var Sólveig, fædd 12. október 1897, Jesdóttir past. emir., (þ.e. fyrrv. prestur), fæddur 28. maí 1872, Gíslasonar kaupmanns Stefánssonar og konu hans Ágústu, fædd 9. ágúst 1873, dáin 13. maí 1939, Eymundsdóttur frá Vopnafirði.
Börn Haraldar og Sólveigar:
1. Hörður Haraldsson viðskiptafræðingur og málari, kennari við Háskólann á Bifröst, margfaldur meistari í spretthlaupum, f. 11. september 1929, d. 5. október 2010.
2. Eiríkur Haraldsson íþróttafræðingur, magister í þýsku, menntaskólakennari og frömuður við skíðasvæðið í Kerlingarfjöllum, f. 12. mars 1931.
3. Ágúst Pétur Haraldsson véltæknifræðingur, f. 13. október 1935.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Haraldur er hár maður vexti, herðabreiður, en niðurmjór, enda mjög sterkur maður. Hann er ljós yfirlitum, en skolhærður, beint nef, stór kinnbein og hátt enni, maður fríður ásýndum og hinn gjörvulegasti. Hann er skapléttur, ávallt hýr og brosandi og mjög viðmótsþýður og afhaldinn af öllum, sem kynnast honum, og vinmargur. Félagi er hann prýðilegur og hrókur alls fagnaðar, í fjöl- og fámenni.
Í úteyjum var hann mikið við veiðar, ágætur veiðimaður, en hélst illa á háfum, enda sló hann vel kröftuglega á fuglinn og braut því nokkuð. Burðarmaður t.d. í Álsey var hann svo að bar af öllum, enda lék hann sér að bera þar upp brekkurnar 120-130 og annað eftir því.
Haraldur var um tíma í Ameríku, hvar hann stundaði rafmagnsvinnu og kynnti sér nýjungar á því sviði.
Ekki hafði hann lengi verið heima eftir Ameríkudvöl, er hann í úteyjar fór aftur, fyrst í Suðurey, svo Álsey, Brand og síðast í Bjarnarey. Haraldur hafði löngu áður en radioviðskipti bárust til lands og Eyja búið sér viðtökutæki og heyrt í þeim, enda þótt hann skildi þau hljóðmerki ekki.
Í Bjarnarey kom hann sér upp senditæki og gat talað heim, við Vestmannaeyja Radio og sendi þess utan oft út söng og hjóðfæraslátt, sem mjög var afhaldinn þáttur af Eyjabúum, sem viðtökutæki höfðu.
Margt fann Haraldur upp, til hægðarauka fyrir sig og félaga sína í úteyjum og var sannkölluð hjálparhella og ómissandi viðlegufélagi. Hann hætti úteyjaferðum eftir hrap Sigurgeirs í Suðurgarði.
Hann er nú fluttur til Reykjavíkur og vinnur við byggingu raftækja hjá firmanu Rafha í Hafnarfirði. Var mikil eftirsjá að Haraldi héðan úr bænum, og sakna hans margir, en minningin um góðan félaga mun lengi lifa hjá veiðimönnum Eyjanna.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Haraldur Eiríksson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.