Ritverk Árna Árnasonar/Einar Bjarnason (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júní 2015 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júní 2015 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Einar Bjarnason frá Dölum, fæddist 13. apríl 1861 í Eyjum og lést í Bandaríkjunum 29. maí 1911.
Foreldrar hans voru Bjarni Bjarnason bóndi í Dölum, f. 12. maí 1828 og kona hans Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1833.

Þau hjón Einar og Steinvör voru vinnufólk á Vilbogarstöðum eystri 1870, bændahjón á Búastöðum 1890. Þau fóru til Vesturheims með þrjú börn sín 1891, frá Búastöðum.
Einar var bróðir Guðríðar Bjarnadóttur í Sjólyst, f. 22. ágúst 1855, d. 15. febrúar 1931, móður Tómasar M. Guðjónssonar.
Kona Einars var Steinvör Lárusdóttir hreppstjóra á Búastöðum Jónssonar og konu hans Kristínar Gísladóttur frá Pétursey í Mýrdal.
Börn þeirra fædd hér:
1. Kristín Einarsdóttir, f, 22. desember 1884, d. 28. desember 1884 „úr krampa“, vafalítið ginklofi.
2. Gísli Jóhann Einarsson, f. 17. febrúar 1886, d. 1. júlí 1898 Vestanhafs.
3. Kristín Ingunn Einarsdóttir, f. 17. júní 1889, d. fyrir 1910.
4. Lárus Einar Einarsson, f. 1891, d. 31. desember 1892 Vestanhafs.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Einar var mikið við fuglaveiðar og talinn ágætur veiðimaður, lipur og slyngur fjallamaður.
Árið 1891 flutti Einar til USA og kona hans árið eftir. Þau bjuggu lengst af vestur við Kyrrahaf, og þar lést Einar fimmtugur að aldri. Kona hans dó þar nokkru síðar. Börn áttu þau fjögur, sem öll lifðu foreldra sína.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubók.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.