Ritverk Árna Árnasonar/Ólafur Svipmundsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ólafur Svipmundsson verkamaður á Löndum fæddist 27. maí 1867 og lést 1. júní 1946.
Foreldrar hans voru Svipmundur Ólafsson bóndi á Loftsölum í Mýrdal, f. 23. nóvember 1825, d. 22. júlí 1912, og kona hans Þórunn Karítas Árnadóttir húsfreyja, f. 10. mars 1839 á Dyrhólum í Mýrdal, d. 12. mars 1910.

Ólafur var með foreldrum sínum á Loftsölum til 1897, bóndi þar 1897-1903.
Hann var húsmaður á Vatnsskarðshólum 1903-1904.
Ólafur fór til Eyja 1904 og stundaði verkamannastörf.

Kona Ólafs var, (23. júní 1893), Þorbjörg húsfreyja á Loftsölum, f. 19. september 1864 á Vatnsskarðshólum, d. 18. ágúst 1903 á Loftsölum, Pétursdóttir bónda á Vatnsskarðshólum, f. 11. júlí 1817 á Syðsta-Hvoli, d. 3. júní 1866, Erlendssonar bónda á Suður-Hvoli, f. 1787, d. 29. júlí 1833, Péturssonar bónda í Pétursey, f. 1753 í Norðurgarði í Mýrdal, d. 25. ágúst 1816 í Pétursey, Jónssonar, og konu Péturs Jónssonar, Ingveldar húsfreyju, f. 1755, d. 22. júní 1818, Ólafsdóttur.
Móðir Péturs á Vatnsskarðshólum og kona Erlendar á Suður-Hvoli var Þórunn húsfreyja, f. 1789 á Hvoli í Mýrdal, d. 28. maí 1859, Jónsdóttir bónda á Syðsta-Hvoli, skírður 2. janúar 1748, d. 26. ágúst 1819, Eyjólfssonar, og konu Jóns Eyjólfssonar, Elínar húsfreyju, f. 1748, d. 29. september 1807, Sæmundsdóttur.

Móðir Þorbjargar á Loftssölum og kona Péturs á Vatnsskarðshólum var Guðríður húsfreyja á Loftsölum, f. 27. ágúst 1823 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 27. júní 1910 á Rauðhálsi þar, Þorsteinsdóttir bónda, síðast á Eystri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1786 á Vatnsskarðshólum þar, d. 26. janúar 1845 á Eystri-Sólheimum, Þorsteinssonar bónda á Vatnsskarðshólum, f. 1746, d. 9. júlí 1834 á Ketilsstöðum, Eyjólfssonar, og fyrstu konu Þorsteins, Karítasar húsfreyju, d. 1800, Jónsdóttur klausturhaldara á Reynistað í Skagafirði Vigfússonar og konu hans Þórunnar Hannesdóttur Scheving, síðar konu Jóns eldklerks Steingrímssonar.
Móðir Guðríðar á Loftsölum og kona Þorsteins á Eystri-Sólheimum var Elín húsfreyja, f. 1787 á Hvoli í Mýrdal, d. 16. janúar 1871 á Eystri-Sólheimum, Jónsdóttir bónda á Syðsta-Hvoli í Mýrdal, skírður 2. janúar 1748, d. 26. ágúst 1819 á Hvoli, Eyjólfssonar, og konu Jóns Eyjólfssonar, Elínar húsfreyju, f. 1748, d. 29. september 1807 á Syðsta-Hvoli, Sæmundsdóttur.

Börn Ólafs og Þorbjargar voru:
1. Árni Ólafsson, f. 18. janúar 1896, fórst með v/b Adólf VE-191 3. mars 1918, ókvæntur og barnlaus.
2. Matthildur, f. 27. maí 1897, d. 9. júlí 1918. Hún var fóstruð á Lundi eftir lát móður sinnar, en lést sama ár og bróðir hennar Árni.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Ólafur var lágur vexti, en þrekinn, svarthærður og dökkur yfirlitum og nokkuð feitlaginn.
Hann var mjög rólegur og stilltur í daglegri umgengni, mesta prúðmenni í hvívetna. En í sínum hóp var Ólafur ræðinn og skemmtilegur. Hann var mjög til baka frá öllu fjölmenni og virtist því mjög daufur maður. Við lát sonar síns Árna, sem hann unni mjög, breyttist hann að mun og syrgði hann soninn mikið. Hefir það eflaust haft mikil áhrif á framkomu Ólafs yfirleitt.
Ólafur var allgóður veiðimaður, stilltur, rólegur og gætinn, traustur liðsmaður við bjargferðir og tók nokkurn þátt í þeim, og þá helst sem bátsmaður; þó var hann stundum við önnur störf bjargferða og farnaðist vel.
Ólafur var annars sjómaður og aðgerðarmaður hjá Friðriki bróður sínum á Löndum, vel dugmikill við þau störf sem önnur og kom sér vel við samstarfsmenn sína, bæði til sjós og lands, ekki síst í úteyjum.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.