Ritverk Árna Árnasonar/Jón Ísaksson (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. september 2015 kl. 10:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. september 2015 kl. 10:55 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ísaksson frá Norðurgarði, bóndi á Kirkjubæ, fæddist 11. mars 1859 og lést 20. ágúst 1890, hrapaði í Ystakletti.
Foreldrar hans voru Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 1833, og kona hans Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 1833.

Jón var með foreldrum sínum í Norðurgarði 1860. Hann var niðursetningur í Draumbæ 1870, 21 árs vinnumaður í Jónshúsi, (Hlíðarhúsi) 1880, bóndi á Kirkjubæ 1887. Hann hrapaði til bana 1890.

Kona Jóns Ísakssonar, (23. október 1885), var Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Framnesi, f. 31. ágúst 1858, d. 18. ágúst 1924.
Börn Jóns og Guðbjargar hér:
1. Maríus í Framnesi, f. 7. febrúar 1883, d. 31. maí 1955, kvæntur Guðveigu Bjarnadóttur, f. 29. júlí 1880, d. 25. ágúst 1926.
2. Guðjón Pétur í Framnesi, f. 20. febrúar 1885, d. 24. janúar 1945, kvæntur Níkólínu Guðnadóttur, f. 20. ágúst 1874, d. 19. nóvember 1950.
3. Þóranna Guðrún, f. 28. maí 1887, d. 9. júní 1920, gift Sigbirni Björnssyni á Ekru, f. 8. september 1876, d. 21. maí 1962.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Hrapaði 1890 í Ystakletti.
Hann var faðir Maríusar í Framnesi hér en sonur Ísaks bónda í Norðurgarði Jónssonar, móðir Jóns var Guðrún Ólafsdóttir.
Kona Jóns var Guðbjörg í Framnesi Guðmundsdóttir frá Elínarhúsi Péturssonar og Margrétar Arnbjarnardóttur.
Synir Jóns og Guðbjargar:
Maríus í Framnesi, kvæntur Guðveigu Bjarnadóttur.
Guðjón í Framnesi, kvæntur Níkólínu Guðnadóttur.
Dóttir Jóns og Guðbjargar var Þóranna sem gift var Sigbirni Björnssyni Ekru.
(sbr v/ Sigbjörn í Elliðaeyjarbók).
Sonur Ísaks í Norðurgarði og Valgerðar Jónsdóttur frá Litlabæ var Hjálmar Ísaksson er bjó í Köfung, kvæntur Andreu Hannesdóttur frá Grímshjalli. Voru meðal barna þeirra Jón Hjálmarsson í Sætúni hér og Ingibjörg kona Friðbjörns Þorkelssonar.
Jón var vart meira en meðalgóður veiðimaður en rólegur og setinn. Félagsmaður var hann góður, hressilegur og ræðinn vel.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.