Rannveig Hannesdóttir (Juliushaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Rannveig Hannesdóttir (Juliushaab)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Rannveig Hannesdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Vesturheimi fæddist 7. janúar 1879 á Grímsstöðum í Meðallandi og lést 23. júlí 1971 í Bandaríkjunum.
Foreldrar hennar voru Hannes Hannesson bóndi víða í Meðallandi, f. 12. júlí 1834, d. 6. október 1898, og kona hans Þuríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1840, d. 2. mars 1916 í Eyjum.

Börn Þuríðar og Hannesar í Eyjum voru:
1. Þuríður Hannesdóttir húsfreyja á Oddsstöðum og Vesturhúsum, f. 10. júní 1867, d. 4. apríl 1953.
2. Hannes Hannesson vinnumaður, síðar skósmiður á Siglufirði, f. 24. október 1868, d. 28. janúar 1906.
3. Dagbjört Hannesdóttir, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 25. september 1880, d. 2. febrúar 1960.
4. Dómhildur Hannesdóttir, f. 14. september 1865, d. 16. desember 1959. Hún var vinnukona í Eyjum skamma stund um aldamótin 1900.
5. Guðrún Hannesdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Mjóafirði og Reykjavík, f. 3. október 1877, d. 18. september 1963.
6. Rannveig Hannesdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Vesturheimi, f. 7. janúar 1879.
7. Kristín Hannesdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Eyjum í Breiðdal, f. 25. september 1880, d. 23. febrúar 1943.

Rannveig var hjá foreldrum sínum á Grímsstöðum í Meðallandi til 1884, í Klauf þar 1884-1885. Hún var á sveit í Efri-Ey þar 1885-1886, tökubarn á Herjólfsstöðum í Álftaveri og síðan vinnukona þar 1886-1899.
Hún fluttist frá Herjólfsstöðum til Eyja 1899, var vinnukona í Juliushaab.
Rannveig fluttist til Vesturheims 1905.
Hún vann ýmis störf í Winnipeg 1905-1909.
Þau Jón Jónsson giftust 1909. Þau bjuggu í Elfros í Saskatchewan í Kanada 1909-1915, í Montana-fylki í Bandaríkjunum 1915-1922, í Point Roberts í Washington-fylki þar 1922-1925, í Blaine þar 1825-1860 og áfram.
Rannveig lést 1971.

Maður Rannveigar, (19. júlí 1909), var Jón Jónsson úr Mýrdal, vinnumaður í Nýjabæ, f. 22. mars 1881, d. 15. mars 1967. Hann nefndi sig Westman.
Börn þeirra:
1. Hannes skipstjóri í Seattle, f. 17. maí 1910.
2. Guðjón Eyþór skipstjóri í Blaine, f. 20. febrúar 1914.
3. Dómhildur Helga húsfreyja, f. 10. maí 1916.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-íslenzkar æviskrár. Benjamín Kristjánsson, Jónas Thordarson. Skjaldborg 1961-1992.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.