Rannveig Ögmundsdóttir (Smiðjunni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 11:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 11:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Rannveig Ögmundsdóttir bústýra í Smiðjunni fæddist 12. september 1822 og lést 12. febrúar 1893.
Foreldrar hennar voru Ögmundur Jónsson bóndi víða í Landeyjum, en síðast á Skækli (nú Guðnabakki) í A-Landeyjum, f. 1776 á Lágafelli þar, d. 24. mars 1844 á Skækli, og barnsmóðir hans Ingibjörg Magnúsdóttir, síðar húsfreyja á Skækli, f. 9. janúar 1799, d. 11. janúar 1872.

Hálfbróðir Rannveigar, samfeðra, var Jón Ögmundsson bóndi á Kirkjubæ, f. 7. janúar 1806, d. 6. maí 1840.

Rannveig var með Ögmundi föður sínum og Margréti Ólafsdóttur konu hans í Rimakoti í A-Landeyjum 1835, hjá móður sinni og manni hennar Jóni Árnasyni á Syðri-Úlfsstöðum 1840. Hún var ógift vinnukona á Bergþórshvoli í V-Landeyjum 1845 og 1850, ógift í Snotru 1855, „hefur fyrir barni sínu“.

Hún fluttist til Eyja 1858, 36 ára, að Kornhól, og var bústýra hjá Helga Jónssyni, sem var ekkill þar.
Rannveig var bústýra í Smiðjunni 1859 og 1860 hjá Guðmundi Péturssyni sjómanni. Hún var vinnukona í Frydendal 1861-1867, en fór þaðan til Vesturlands.
Rannveig var óg. vinnukona á Söndum í Dýrafirði 1870, í Kvígindisdal við Patreksfjörð 1880 og ómagi í Botni í Súgandafirði 1890.
Hún lést 1893.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.