Ragnhildur Magnúsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 11:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 11:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ragnhildur Magnúsdóttir húsfreyja í Norðurgarði fæddist 1752 og lést 5. nóvember 1789.

Maður hennar var Oddur Bjarnason bóndi í Norðurgarði, síðar á Gjábakka og í Kastala, f. 1746, d. líklega fyrir mt. 1816.
Ragnhildur var fyrri kona hans. Hún lést 1789 úr „sinakreppu“, sem gæti verið stífkrampi, (ginklofi).
Börn þeirra hér:
1. Margrét Oddsdóttir, f. 30. júlí 1786, d. 5. ágúst 1786 úr ginklofa.
2. Hjalti Oddsson, f. 14. september 1787, d. 20. september 1787 úr ginklofa.
3. Jón Oddsson, f. 29. nóvember 1788, d. 7. desember 1788 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.