Ragnhildur Friðriksdóttir (Sólbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ragnhildur Friðriksdóttir.

Ragnhildur Friðriksdóttir frá Rauðhálsi í Mýrdal, húsfreyja á Brekastíg 3, Sólbergi fæddist 5. júní 1902 á Rauðhálsi og lést 16. ágúst 1977.
Foreldrar hennar voru Friðrik Vigfússon bóndi á Rauðhálsi, f. 2. apríl 1871 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 17. nóvember 1916 á Rauðhálsi og kona hans Þórunn Sigríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 5. júlí 1875 í Pétursey í Mýrdal, d. 23. júlí 1959 í Eyjum.

Börn Þórunnar Sigríðar og Friðriks:
1. Vigfús Friðriksson vinnumaður á Rauðhálsi, f. 13. febrúar 1897, d. 3. júní 1918 í Eyjum.
2. Sigurður Friðriksson útgerðarmaður, síðar verkstjóri, Hásteinsvegi 17, f. 22. ágúst 1898, d. 7. maí 1980, kvæntur Elísabet Hallgrímsdóttur.
3. Þorbergur Friðriksson skipstjóri, f. 10. des. 1899, fórst með b/v Sviða 2. desember 1941.
4. Þórunn Friðriksdóttir húsfreyja að Birtingarholti við Vestmannabraut 61, f. 28. apríl 1901 (V-Skaftf. 30. apríl), d. 13. júlí 1972, kona Ingvars Þórólfssonar.
5. Ragnhildur Friðriksdóttir húsfreyja að Brekastíg 3, Sólbergi, f. 5. júní 1902, d. 16. ágúst 1977, kona Guðlaugs Halldórssonar.
6. Oddsteinn Friðriksson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 27. júní 1903, d. 21. sept 1987, kvæntur, (skildu), Þorgerði Hallgrímsdóttur, systur Elísabetar konu Sigurðar.
7. Árþóra Friðriksdóttir húsfreyja í Stykkishólmi, f. 23. desember 1904, d. 17. marz 1990.
8. Högni Friðriksson sjómaður, f. 2. júlí 1907, d. 17. júní 1929.
9. Sigríður Friðriksdóttir húsfreyja, fiskverkakona, verkstjóri, f. 3. júlí 1908, d. 28. febrúar 2011. Maður hennar Halldór Halldórsson.
10. Kristín Friðriksdóttir húsfreyja á Norður-Hvoli í Mýrdal, f. 4. maí 1910, d. 23. október 2009.
11. Ólafur Friðriksson verkamaður á Selfossi, síðast í Hveragerði, f. 29. ágúst 1911, d. 26. jan. 1984.
12. Ragnheiður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1912, d. 12. júlí 1984, kona Haraldar Þorkelssonar.
13. Þórhallur Friðriksson bifreiðastjóri í Eyjum, síðar smiður í Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum, en síðast búsettur á Selfossi, f. 3. nóv. 1913, d. 29. janúar 1999, kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur.
14. Þórhalla Friðriksdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 15. apríl 1915, d. 7. nóvember 1999, kona Þorvalds Guðjónssonar, (skildu), síðar kona Ásmundar Friðrikssonar. Að lokum giftist hún Brynjólfi Hallgrímssyni bróður Elísabetar og Þorgerðar. Þau bjuggu í Kópavogi.

Ragnhildur var með foreldrum sínum til 1907, var tökubarn í Nykhól í Mýrdal og síðan vinnukona þar til 1923, er hún flutti til Eyja.
Þau Guðlaugur giftu sig 1928, bjuggu á Vegbergi við fæðingu Friðþórs 1926, í Héðinshöfða 1927 með Friðþór, bjuggu í Litla-Hvammi 1930 með börnin Friðþór, Öldu og tvær óskírðar stúlkur. Ragnhildur var húsfreyja í Viðey 1934 með Guðlaugi og fimm börnum sínum.
Þau voru komin að Sólbergi við Brekastíg 3 1940 og bjuggu þar til Goss.
Þau Guðlaugur fluttu til Reykjavíkur, bjuggu að Kleppsvegi 32.
Guðlaugur lést 1977 og Ragnhildur 1986.

I. Maður Ragnhildar, (9. júní 1928), var Guðlaugur Halldórsson frá Viðborði á Mýrum í A-Skaft., skipstjóri, f. þar 20. maí 1898, d. 4. apríl 1977.
Börn þeirra:
1. Friðþór Guðlaugsson vélvirkjameistari, f. 11. október 1926, d. 19. júní 2004.
2. Alda Guðlaugsdóttir húsfreyja, verkakona á Húsavík, f. 21. desember 1928 í Litla-Hvammi, d. 24. nóvember 1996.
3. Elín Guðlaugsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, f. 21. apríl 1930 í Litla-Hvammi.
4. Guðbjörg Guðlaugsdóttir, húsfreyja, f. 21. apríl 1930 í Litla-Hvammi, d. 22. ágúst 2013.
5. Vigfúsína Guðlaugsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. 27. nóvember í Viðey, d. 25. desember 1994.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.