Ragnheiður Þorvarðardóttir (Áshamri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. janúar 2020 kl. 20:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. janúar 2020 kl. 20:52 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ragnheiður Þorvarðardóttir Árnadóttir.

Ragnheiður Þorvarðardóttir (Stella), húsfreyja fæddist 14. apríl 1930 í Reykjavík og lést 9. mars 2013 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Árni Björn Diðriksson Knudsen, f. 22. október 1895, d. 8. apríl 1975, og Ragnheiður Þorvarðardóttir, f. 6. júní 1909, d. í desember 1931.

Ragnheiður missti móður sína, er hún var á öðru aldursári.
Hún ólst upp hjá móðurmóður sinni, Jónínu Guðbrandsdóttur húsfreyju í Miklagarði í Dalasýslu, f. 7. október 1873, d. 31. janúar 1941, og síðar hjá móðursystur sinni, Sigríði Þorvarðardóttur húsfreyju í Reykjavík, f. 29. október 1901, d. 25. október 1984. Sigríður var móðir Jónu Sturludóttur húsfreyju á Faxastíg 39.
Ragnheiður giftist Elíeser og eignaðist með honum Reyni. Þau skildu.
Þau Einar Jóhann bjuggu á Búastöðum, eignuðust Gunnar Rafn þar 1955, giftu sig 1956. Þau bjuggu á Búastöðum við fæðingu Jóns Garðars 1959, voru komin á Illugagötu 8 við fæðingu Önnu 1962.
Ragnheiður átti heimili á Áshamri 35 við andlát 2013.

I. Fyrri maður hennar var Elíeser Jónsson flugmaður, f. 10. apríl 1926, d. 24. nóvember 2013.
Barn þeirra:
1. Reynir Elíesersson, f. 11. janúar 1950. Kona hans er Elísabet Halldóra Einarsdóttir.

II. Síðari maður Ragnheiðar, (12. febrúar 1956), var Einar Jóhann Jónsson bifreiðastjóri, f. 15. ágúst 1931 á Faxastíg 15, d. 28. janúar 2018.
Börn þeirra:
2. Gunnar Rafn Einarsson, f. 8. desember 1955 á Búastöðum. Kona hans er Laufey Sigurðardóttir.
3. Jón Garðar Einarsson, f. 10. nóvember 1959 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Hrefna Valdís Guðmundsdóttir.
4. Anna Einarsdóttir, f. 13. apríl 1962. Maður hennar var Jón Berg Sigurðsson og barnsfaðir hennar er Þór Kristjánsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.