Ragnheiður Stefanía Sigfúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. október 2009 kl. 14:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. október 2009 kl. 14:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ragnheiður Stefanía Sigfúsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur''', fædd að Vestri-Löndum 7. júlí 1883.<br> Árið 1907 fór hún til Danmerkur og dvaldist þar í 7 ár...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ragnheiður Stefanía Sigfúsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur, fædd að Vestri-Löndum 7. júlí 1883.
Árið 1907 fór hún til Danmerkur og dvaldist þar í 7 ár. Fyrstu árin var hún þar við nám. Fyrst hóf hún hjúkrunarnám, en hætti því innan tíðar og aflaði sér menntunar til „munns og handa“ í ýmsum dönskum skólum. T.d. stundaði hún nám við Lýðháskólann í Askov sumarið 1908.
Ragnheiður sigldi frá Kaupmannahöfn til Bandaríkjanna veturinn 1914 og kom þá við á Azoreyjum á leiðinni. Þær hafa verið henni undralönd síðan.
Í Bandaríkjunum hefur hún átt heima síðan eða 53 ár. Um mörg ár var hún yfirhjúkrunarkona við sjúkrahús þar vestra. Ekki er annað vitað, en að hún sé enn á lífi, þegar þetta er ritað, 83 ára (1967).