Ragnheiður Árnadóttir (Skálholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ragnheiður Árnadóttir Rogich.

Ragnheiður Árnadóttir Rogich húsfreyja fæddist 19. október 1918 í Garðhúsum við Kirkjuveg 14 og lést 2. nóvember 1999 í Las Vegas.
Foreldrar hennar voru Árni Sigfússon kaupmaður, f. 31. júlí 1887, d. 7. mars 1948, og kona hans Ólafía Árnadóttir húsfreyja frá Gerðum í Garði, f. 8. maí 1895, d. 15. mars 1962.

Börn Ólafíu og Árna:
1. Jón Árni skrifstofumaður, f. 10. mars 1916, d. 2. ágúst 1970, kvæntur Þyri Björnsdóttur, f. 29. september 1915, d. 3. febrúar 1954, dóttur Björns Guðjónssonar á Kirkjubæ og konu hans Sigríðar Jónasdóttur.
2. Ragnheiður húsfreyja, f. 10. október 1918, gift bandarískum manni, d. 2. nóvember 1999.
3. Guðni Hjörtur smiður, fæddur 14. ágúst 1920, d. 3. október 1965.
4. Elín húsfreyja, fædd 18. september 1927, d. 7. október 2003, gift Gunnari Stefánssyni vélstjóra frá Gerði, f. 16. desember 1922, d. 27. desember 2010.
5. Elísabet, f. 4. mars 1930, d. 10. janúar 2020, húsfreyja og framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands, gift Jóhanni Möller, f. 7. febrúar 1920, d. 26. febrúar 2011.

Ragnheiður var með foreldrum sínum.
Hún var tvo vetur í Gagnfræðaskólanum, lauk námi í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Hún vann hjá Landsímanum, fyrst á símstöðinni í Keflavík í nokkur ár, en síðan um árabil hjá Landssímanum í Reykjavík.
Þau Edwin giftu sig 1947, eignuðust fjögur börn. Þau fluttu til Bandaríkjanna 1949, bjuggu síðast í Las Vegas í Nevada.
Ragnheiður lést 1999.

I. Maður Ragnheiðar, (1947), var Edwin L. Rogich, þá flugumferðarstjóri á Keflavíkurflugvelli.
Börn þeirra:
1. Sig Rogich (skírður Sigfús Árnason 19. janúar 1946 í Eyjum), f. 17. maí í Eyjum, síðar sendiherra á Íslandi.
2. Ronnie Rogich.
3. Steve Rogich.
4. Edward Rogich.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.