Ragnheiður Jónsdóttir (Þrúðvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2017 kl. 15:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2017 kl. 15:55 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ragnheiður Jónsdóttir.
Ragnheiður á 100 ára afmæli sínu.
Ragnheiður þurrkar fisk fyrir utan Jómsborg árið 1920.
Ragnheiður við sölvatekju á Klöppunum.

Bjarney Ragnheiður Jónsdóttir á Þrúðvangi, húsfreyja, félagsmálafrömuður fæddist 4. desember 1905 í West-Selkirk í Kanada og lést 9. nóvember 2006.

Ragnheiður fluttist með foreldrum sínum frá Kanada til Íslands 1907 og ólst upp með þeim.
Þau Arthur giftu sig 1929, bjuggu í Brautarholti, eignuðust þrjú börn, en eitt þeirra fæddist andvana. Þau skildu.
Hún giftist Sigurði 1935. Þau bjuggu á Þrúðvangi, eignuðust þrjú börn, en misstu eitt þeirra á öðru ári þess.
Þau dvöldu í Hafnarfirði og Grindavík við Gos, en fluttust heim 1975.
Sigurður lést 1979.
Ragnheiður fluttist síðar í íbúð við Kleifahraun og að síðustu í Hraunbúðir. Hún lést 2006.
Ragnheiður var einn af stofnendum Slysavarnafélagsins Eykyndils, Kvenfélags Landakirkju, Oddfellowstúkunnar nr. 3 Vilborgar og Félags eldri borgara í Vestmannaeyjum. Mestan hluta ævi sinnar sinnti hún húsmóðurstörfum, en vann einnig um nokkurra ára skeið við ræstingar í Sparisjóði Vestmannaeyja og Magnúsarbakaríi.

Ragnheiður var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (1929, skildu), var Arthur Aanes vélstjóri, f. 3. apríl 1903 í Andvaag í Stamnes í Noregi, d. 2. nóvember 1988.
Börn þeirra:
1. Guðjón Emil Aanes skipstjóri, farmaður, f. 24. júlí 1930 í Brautarholti, d. 8. maí 1983.
2. Andvana stúlka, f. í október 1931, jarðsett með Stefáni Hjörleifi Ágústi Jónssyni frá Sigtúni, 22. október 1931.
3. Örn Aanes vélstjóri, f. 18. nóvember 1932 í Brautarholti.

II. Síðari maður Ragnheiðar, (20. júlí 1935), var Sigurður Ólason forstjóri, f. 25. ágúst 1900, d. 6. júní 1979.
Börn þeirra:
4. Óli Haukur Sigurðsson, f. 16. október 1935 á Þrúðvangi, d. 22. janúar 1937.
5. Hólmfríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1940 á Þrúðvangi.
6. Gerður Guðríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. desember 1944 á Þrúðvangi.

Myndir



Heimildir