Ragnar Engilbertsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. janúar 2017 kl. 21:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. janúar 2017 kl. 21:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ragnar
Ragnar málar Heimaklett.

Ragnar Engilbertsson er fæddur 15. maí 1924 og lést 6. desember 2016. Hann var sonur Engilberts Gíslasonar húsamálara og Guðrúnar Sigurðardóttur húsmóður, en faðir hans hafði stundað listmálun um langt skeið. Telja má líklegt að það hafi haft áhrif á hann.

Ragnar lærði húsamálun, en nítján ára fór hann í Handíða- og myndlistaskólann í Reykjavík (1943-1945). Á árunum 1948-1951 var hann við nám í Kunstakademíunni í Kaupmannahöfn.

Hógværð og lítillæti er aðalsmerki Ragnars og það var ekki fyrr en um 1980 sem myndir Ragnars birtust almenningi í Eyjum. Áður hafði hann sýnt á nokkrum samsýningum til dæmis í Charlottenborg og Reykjavík. Stór hluti verka hans tengist Vestmannaeyjum, landslagi, sögu og mannlífi staðarins. Þykir Ragnar sérstaklega snjall í meðferð vatnslita en einnig eru olíumálverk hans vel þekkt.

Á sumardaginn fyrsta 2004 var Ragnar gerður að heiðurslistamanni Vestmannaeyja og var hann sá fyrsti sem hlaut þá nafnbót.