Ragnar Eðvaldsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. október 2019 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. október 2019 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ragnar Eðvaldsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ragnar Eðvaldsson frá Garðstöðum, bakarameistari og kaupmaður í Keflavík fæddist 6. nóvember 1940.
Foreldrar hans voru Eðvald Valdórsson frá Reyðarfirði, sjómaður, vélstjóri, f. 10. ágúst 1912, d. 14. nóvember 1942, og kona hans Ágústa Helga Jónsdóttir frá Garðstöðum, húsfreyja, f. þar 20. ágúst 1917, d. 29. febrúar 2008.
Stjúpfaðir Ragnars var Guðmundur Lúðvík Jónsson bifreiðastjóri, síðar hafnarvörður, f. 15. ágúst 1916, d. 4. janúar 2005.

Ragnar missti föður sinn, er hann var tveggja ára.
Hann var með móður sinni í Eyjum, fluttist með henni að Hárlaugsstöðum í Ásahreppi, þar sem hún var ráðskona um skeið. Þá fluttust þau til Keflavíkur. Móðir Ragnars giftist Lúðvíki 1948 og Ragnar varð stjúpbarn hans.
Ragnar lærði bakaraiðn hjá Sigurði móðurbróður sínum í Reykjavík og nam við Iðnskólann í Reykjavík, varð sveinn 1963 og fékk meistarabréf 1966.
Hann rak Ragnarsbakarí í Keflavík og síðar Árbak þar.
Þau Ásdís giftu sig 1960, eignuðust fimm börn.

I. Kona Ragnars, (19. nóvember 1960), er Ásdís Guðrún Þorsteinsdóttr húsfreyja, f. 12. mars 1942. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þórðarson skipstjóri, f. 31. ágúst 1912, d. 22. mars 1958, og kona hans Anna Kristjana Bjarnadóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 25. júlí 1916 á Sveinsstöðum á Seltjarnarnesi, d. 4. júlí 2011.
Börn þeirra:
1. Helga Ragnarsdóttir húsfreyja, fótaaðgerðafræðingur, flugfreyja, f. 22. apríl 1961. Maður hennar Óskar Þórmundsson.
2. Steina Þórey Ragnarsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 29. nóvember 1964. Maður hennar Helgi B. Eðvarðsson.
3. Anna Margrét Ragnarsdóttir húsfreyja, næringarfræðingur, viðskiptafræðingur, fasteignasali. Hún vinnur á skrifstofu American Airlines í Arizona, f. 22. júlí 1966. Maður hennar, skildu, Óskar Marinó Jónsson.
5. Eðvald Ragnarsson flugvirki, f. 9. febrúar 1977. Kona hans Guðrún Hrafnkelsdóttir.
6. Jóna Birna Ragnarsdóttir húsfreyja, sjóntækjafræðingur, f. 25. júlí 1978. Maður hennar Unnar Sigurðsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.