Ragna Einarsdóttir (Breiðabliki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. nóvember 2021 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. nóvember 2021 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ragna Jóhanna Einarsdóttir frá Breiðabliki, húsfreyja í Eyjum og í Hafnarfirði fæddist 1. febrúar 1935 á Heimagötu 30 og lést 19. september 1992.
Foreldrar hennar voru Einar Sölvi Illugason vélvirkjameistari, f. 1. apríl 1911 á Brekku, d. 28. ágúst 1972, og kona hans Steinunn Rósa Ísleifsdóttir frá Nýjahúsi, húsfreyja, f. þar 7. júní 1912, d. 13. júlí 1994 á Sólvangi í Hafnarfirði.

ctr


Rósa og Einar og 4 börn þeirra. Frá vinstri: Baldvin, Ragna, Marlaug og Laufey.

Börn Rósu og Einars:
1. Marlaug Einarsdóttir húsfreyja, verslunarkona, síðast í Hafnarfirði, f. 18. júlí 1933 á Reynifelli, d. 17. desember 2006.
2. Ragna Jóhanna Einarsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði, f. 1. febrúar 1935, d. 19. september 1992.
3. Haraldur Grétar Einarsson, f. 21. ágúst 1937 á Hjalteyri, d. 6. desember 1937.
4. Laufey Þóra Einarsdóttir bankaritari í Hafnarfirði, f. 22. júlí 1939 á Urðavegi 8, Steinum, d. 19. júlí 1994.
5. Baldvin Einarsson byggingafræðingur í Reykjavík, f. 27. maí 1941 á Urðavegi 8, Steinum.
6. Fjóla Einarsdóttir húsfreyja á Álftanesi, f. 2. mars 1946 á Breiðabliki, síðast á Álftanesi, d. 20. janúar 1993.
7. Einar Vignir Einarsson, síðast í Eyjum, f. 17. nóvember 1949 á Breiðabliki, d. 7. nóvember 1966.

Ragna var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Hans giftu sig 1954, eignuðust tvö kjörbörn. Þau byggðu hús við Boðaslóð 13 og bjuggu þar til Goss 1973.
Þau fluttu til Hafnarfjarðar og bjuggu þar á Flatahrauni 16.
Ragna söng í Kirkjukór Víðistaðakirkju.
Hans lést 1990 og Ragna 1992.

I. Maður Rögnu, (31. desember 1954), var Hans Ólafsson vélstjóri, vélvirki, f. 4. október 1933, d. 13. maí 1990.
Börn þeirra:
1. Helga Rósa Hansdóttir, f. 9. nóvember 1960. Hún er kjördóttir hjónanna. Kynmóðir hennar var Erla Guðnadóttir, f. 8. apríl 1935.
2. Einar Vignir Hansson, f. 31. ágúst 1967. Hann var kjörsonur hjónanna. Kynforeldrar hans voru Júlíus Sigurbjörnsson sjómaður, f. 4. mars 1946 og Guðrún Halldóra Jóhannesdóttir frá Reynivöllum, f. 5. júní 1948.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.