Rósa Sæmundsdóttir (Draumbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rósa Sæmundsdóttir frá Draumbæ, húsfreyja fæddist 26. september 1907 og lést 25. október 1984.
Foreldrar hennar voru Sæmundur Ingimundarson bóndi í Draumbæ, f. 1. september 1870 í Eyjum, d. 28. október 1942 og kona hans Sigríður Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1879 í Brautarholtssókn í Kjósarsýslu, d. 28. apríl 1950.

Börn Sæmundar og Sigríðar voru:
1. Sigrún Karólína Sæmundsdóttir, f. 18. apríl 1902, d. 10. apríl 1989.
2. Kristmundur Sæmundsson, f. 1. nóvember 1903, d. 21. ágúst 1981.
3. Rósa Sæmundsdóttir, f. 26. september 1907, d. 25. október 1984.
4. Katrín Sæmundsdóttir, f. 15. desember 1910, d. 30. september 1929.
5. Andvana drengur, f. 28. ágúst 1912.
6. Ásta Þórhildur Sæmundsdóttir, f. 27. janúar 1918, d. 4. janúar 1996.
7. Laufey Hulda Sæmundsdóttir, f. 29. október 1920, d. 15. september 2002.

Rósa var með foreldrum sínum, heimasæta þar 1945, ennþá 1949, þá með son sinn hjá sér þar.
Þau Ragnar giftu sig, eignuðust eitt barn, sem þau misstu tveggja ára. Þau bjuggu í Áshól við Faxastíg 17.
Rósa lést 1984 og Ragnar 1999.

I. Maður Rósu var Ragnar Jóhannsson frá Skálum á Langanesi, sjómaður, f. 5. febrúar 1919, d. 1. febrúar 1999.
Barn þeirra:
1. Sæmundur Rósveld Ragnarsson, f. 7. mars 1949, d. 16. mars 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.