Róbert Marshall

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 15:23 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 15:23 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Róbert

Róbert Marshall er fæddur 31. maí 1971. Móðir hans er Fríða Eiríksdóttir og fósturfaðir hans er Jóhann Friðriksson, búsett á Hásteinsvegi. Bróðir Róbers er Eiríkur Tómas Marshall. Kona Róberts er Brynhildur Ólafsdóttir fréttamaður og eiga þau tvö börn saman. Áður eignaðist Róbert þrjú börn með fyrrverandi konu sinni, Sigrúnu Elsu Smáradóttur.

Róbert var ungur að árum þegar hann hóf störf við fjölmiðlun. Róbert vann lengi sem fréttamaður á Stöð 2 en sagði af sér þegar í ljós kom að frétt sem hann hafði unnið um Íraksstríðið innihélt rangfærslur. Róbert var einnig formaður blaðamannafélags Íslands. Róbert starfar í dag sem forstöðumaður 365 ljósvakamiðla.

Árið 2003 leiddi Róbert brekkusönginn á Þjóðhátíð í fjarveru Árna Johnsen og fórst honum það vel úr hendi.

Haustið 2006 tók Róbert þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi, þar sem hann tryggði sér þriðja sætið nokkuð örugglega. Það sæti dugði honum þó ekki til að ná á Alþingi í alþingiskosningunum 2007, en hann er varaþingmaður.

Í júní 2007 var Róbert ráðinn aðstoðarmaður samgönguráðherra, Kristjáns Möller.