Ráðhúsið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 13:58 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 13:58 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ráðhús Vestmannaeyja

Ráðhúsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og byggt sem sjúkrahús árið 1927 og gegndi því hlutverki fram til ársins 1973, þegar að nýja sjúkrahúsið var tekið í notkun. Það stendur við Ráðhúströð. Stóðu yfir endurbætur á húsinu á árunum 1974-1977.Gísli Johnsen var frumkvöðull um byggingu hússins það kostaði 240 þúsund krónur.þar störfuðu m.a. Einar Guttormsson læknir og Ólafur Lárusson héraðslæknir.

Austan við bygginguna er lítið hús sem var upprunalega líkhús byggt 1932, en efri hæð þeirrar byggingar var notað sem íbúð fyrir starfsfólk sjúkrahússins sem kom til tímabundinna starfa ofan af landi, þá aðallega hjúkrunarfræðingar.



Heimildir

  • Kirkjuvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.