Rúdólf Pálsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2017 kl. 09:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2017 kl. 09:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Rúdólf Pálsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Rúdólf Pálsson.

Rúdólf Skaftason Pálsson viðskiptafræðingur, kennari, ljóðskáld fæddist 7. október 1931 í Lyngfelli.
Foreldrar hans voru Páll Oddgeirsson kaupmaður, útgerðarmaður, f. 5. júní 1888, d. 24. júní 1971, og Ragnhildur Skaftadóttir vinnukona í Lyngfelli, f. 8. febrúar 1904, d. 12. október 1939.

Börn Páls og hálfsystkini Rúdólfs:
1. Richard Pálsson framkvæmdastjóri, f. 27. september 1920 í Miðgarði, d. 4. mars 1994.
2. Ísleifur Annas Pálsson skrifstofustjóri, forstjóri, f. 27. febrúar 1922 í Miðgarði, d. 14. desember 1996. Kona hans var Ágústa Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 10. desember 1922 í Fagurlyst, d. 31. mars 2013.
3. Oddgeir Pálsson skrifstofumaður í Reykjavík, síðar fasteignasali í Los Angeles, f. 22. desember 1923 í Miðgarði.
4. Anna Regína Pálsdóttir húsfreyja, baðvörður, f. 16. maí 1928 í Reykjavík. Maður hennar var Sveinbjörn Hermann Þorbjarnarson loftskeytamaður, f. 4. apríl 1929 á Akureyri, d. 30. september 1979 í London.
5. Bergljót Pálsdóttir húsfreyja, verslunarstjóri, skrifstofumaður á Akureyri, f. 19. janúar 1933 í Miðgarði. Maður hennar var Tryggvi Georgsson múrarameistari, f. 17. febrúar 1932 á Akureyri, d. 2. nóvember 2010.

Barn Ragnhildar og hálfbróðir Rúdólfs:
6. Grétar Skaftason skipstjóri, f. 26. október 1926, drukknaði 5. nóvember 1968.

Rúdólf var með móður sinni í Eyjum, en fluttist með henni að Suður-Fossi í Mýrdal 1934. Hún lést 1939 og hann ólst upp hjá Sigurjóni móðurbróður sínum og Guðbjörgu Nikulásdóttur bústýru hans á Suður-Fossi, en hún var síðari kona Skafta Gíslasonar afa Rúdólfs.
Rúdólf tók landspróf við Héraðsskólann á Laugarvatni, varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954.
Hann lauk námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands 1958 og stundaði nám við verslunarháskóla í Bergen í Noregi 1959-1960..
Rúdólf var kennari við barna-og unglingaskólann á Blönduósi 1962-1963, við Gagnfræðaskólann í Keflavík 1963-1964, Barna-og miðskólann á Dalvík 1964-1965, Barna-og unglingaskólann í Ólafsvík 1965-1966, Barna-og miðskólann á Patreksfirði 1969-1970, Gagnfræðaskólann á Sauðárkróki 1970-1971, Barnaskólann og miðskólann í Bolungarvík 1971-1972. Auk þessa hefur hann stundað ýmis skrifstofustörf og verkamannavinnu.
Rúdólf hefur ort ljóð og gaf út ljóðabók 1973: Á svörtum reiðskjóta. Auk þessa hefur hann gefið út ljóð á fjórum öðrum tungumálum.
Hann hefur dvalið á Eir í Reykjavík síðust 1-2 árin (2017).
Rúdólf er ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðbjörg Guðbergsdóttir.
  • Íslendingabók.is.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.