Pálína Pálsdóttir (Eyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2019 kl. 18:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2019 kl. 18:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Pálína Jóhanna Pálsdóttir á Eyri, húsfreyja fæddist 29. september 1890 á Eyri í Ísafirði við Ísafjarðardjúp og lést 23. nóvember 1980.
Foreldrar hennar voru Páll Pálsson frá Þernuvík við Ísafjarðardjúp, bóndi á Eyri, f. 20. september 1845, d. 16. apríl 1894, og Helga Sigurðardóttir frá Bjarnastöðum í Ísafirði við Djúp, húsfreyja, f. 5. júní 1853, d. 26. febrúar 1938.

Systir Pálínu var Margrét María Pálsdóttir fyrri kona Jóns Finnboga Bjarnasonar og móðir Bjarna Gíslasonar Jónssonar skipstjóra og útgerðarmanns í Garðshorni, f. 28. september 1911, d. 9. júní 1987.

Pálína var með foreldrum sínum í frumbernsku, en faðir hennar lést, er hún var á fjórða árinu.
Hún var með ekkjunni og hlutakonunni (þ.e. ráðskonunni, fanggæslunni) móður sinni í húsi Guðmundar Sveinssonar og Halldórs Sölvasonar í Skutulsfirði 1901, með móður sinni, húsfreyjunni í húsi Sigurðar Pálssonar þar 1910. Þau Símon giftu sig 1914, bjuggu í Reykjavík við fæðingu þriggja elstu barna sinna, á Seljalandi þar 1920.
Þau fluttust frá Reykjavík til Eyja 1921, bjuggu á Eiðinu 1921 og 1922, á Brimnesi, Bakkastíg 19 við fæðingu Margrétar í maí 1923, fluttu húsið á Eiðinu að Vesturvegi 25 1923 og það nefndu það Eyri, og þar bjuggu þau 1940 með fjórum börnum sínum, Guðmundi Einari, Karli, Sverri og Sveinbjörgu.
Símon og Pálína misstu útgerð sína í Kreppunni 1929.
Þau Símon fluttust til Reykjavíkur 1943 og bjuggu þar og í Hafnarfirði, á Hvaleyrarbraut 5. Þar bjuggu þau við andlát Símonar 1955.
Pálína bjó síðast á Hringbraut 75 þar. Hún lést 1980.


ctr
Pálína og börn.

I. Maður Pálínu, (14. júlí 1914), var Símon Guðmundsson útgerðarmaður, verkamaður á Eyri og víðar í Eyjum, f. 21 maí 1884 á Borgareyrum u. V-Eyjafjöllum, d. 2. apríl 1955.

Börn þeirra voru:
1. Sigríður Símonardóttir húsfreyja í Eyjum, Reykjavík og Hafnarfirði, f. 10. febrúar 1914 í Reykjavík, d. 27. apríl 1994.
2. Fjóla Símonardóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 9. september 1918 í Reykjavík, d. 29. maí 2010.
3. Guðmundur Einar Símonarson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 8. september 1920 í Reykjavík, síðast í Grindavík, d. 6. nóvember 1998.
4. Unnur Björg Símonardóttir, f. 22. janúar 1922 á Eiðinu, d. 2. júlí 1922.
5. Margrét Símonardóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. 11. maí 1923 á Brimnesi, d. 23. september 2008.
6. Páll Símonarson, f. 3. maí 1924 á Eyri, d. 12. maí 1924.
7. Helga Símonardóttir húsfreyja, verkakona á Selfossi, f. 4. júlí 1925 á Eyri, d. 16. júní 2011.
8. Karl Símonarson verkamaður í Reykjavík, f. 16. nóvember 1926 á Eyri, síðast í Grindavík, d. 12. apríl 1976.
9. Sigríður Svanborg Símonardóttir húsfreyja, bóndi í Ártúnum á Rangárvöllum, síðast á Selfossi, f. 6. desember 1927 á Eyri, d. 13. apríl 2016.
10. Magnús Jónsson, f. 11. september 1929 á Eyri, d. 16. ágúst 2006. Hann varð kjörbarn Jóns á Hólmi og Stefaníu Einarsdóttur.
11. Sverrir Símonarson verkamaður, sjómaður í Reykjavík og Kópavogi, f. 19. desember 1930 á Eyri, d. 16. nóvember 2016.
12. Unnur Símonardóttir, f. 16. mars 1932 á Eyri, d. 28. júní 1932.
13. Sveinbjörg Símonardóttir húsfreyja, einkaritari í Reykjavík, f. 18. janúar 1934 á Eyri.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.