Pálína Jónsdóttir (Viðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. desember 2019 kl. 16:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. desember 2019 kl. 16:30 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Einarsson og Pálína Jónsdóttir.

Pálína Jónsdóttir frá Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., húsfreyja í Viðey fæddist 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ og lést 6. mars 1963 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi, f. 10. janúar 1849 í Búð í Djúpárhreppi, d. 3. apríl 1945 í Norður-Nýjabæ, og kona hans Þórunn Pálsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 12. maí 1852 í Norður-Nýjabæ, d. þar 15. desember 1934.

Pálína var með foreldrum sínum í æsku og var húskona þeirra með Guðmundi frá 1910 til 1911.
Þau Guðmundur giftu sig 1910, voru húsfólk í Norður-Nýjabæ til 1911, en fluttust þá að Ytri-Hóli í V-Landeyjum og bjuggu þar til 1921, er þau fluttu til Eyja.
Þau bjuggu á Seljalandi á því ári, voru komin í Viðey 1922. Þau eignuðust tólf börn, en misstu eitt barn hálfs árs gamalt og tvö barna þeirra voru fóstruð hjá foreldrum Pálínu í Norður-Nýjabæ. Tvö yngstu börnin fæddust í Eyjum.

Pálína rak stórt heimili í Eyjum, heimili útgerðarmanns og bónda eins og þau gerðust á fyrri hluta 20. aldar, þar sem sjómenn og landmenn voru gjarnan til heimilis hjá útgerðarfjölskyldunni um vetrarvertíðina.
Guðmundur lést 1943. Pálína fluttist til Reykjavíkur á síðari hluta fimmta áratugarins og lést 1963.

I. Maður Pálínu, (11. nóvember 1910), var Guðmundur Einarsson bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943.
Börn þeirra:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924 í Viðey, d. 26. febrúar 2011.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.