Páll Sigurgeir Jónasson (þingholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 13:00 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 13:00 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Sigurgeir Jónasson fæddist 8. október 1900 og lést 31. janúar 1951. Kona hans var Þórsteina Jóhannsdóttir. Þau bjuggu í Þingholti, Kirkjuvegi 5. Þau áttu mörg börn og m.a. Kristin skipstjóra.

Páll var formaður með mótorbátinn Njörð.

Páll var um borð í Glitfaxa er hann fórst 31. janúar 1951. Tuttugu manns voru um borð og komst enginn lífs af.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Pál:

Frá Þingholti þá er Páll
þéttur troll að klára,
þó að strjúki óður Áll
örk í hríðum Kára.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.