Páll Vídalín Einarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. janúar 2019 kl. 15:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. janúar 2019 kl. 15:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Páll Vídalín Einarsson''' bifreiðastjóri á Höfn við Hornafjörð fæddist 20. nóvember 1914 á Kirkjubæ og lést 13. desember 1988. <br> Foreldrar hennar v...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Vídalín Einarsson bifreiðastjóri á Höfn við Hornafjörð fæddist 20. nóvember 1914 á Kirkjubæ og lést 13. desember 1988.
Foreldrar hennar voru Einar Þórðarson frá Götu í Holtum, Rang., verkamaður, f. 9. júní 1882, d. 12. febrúar 1925 á Sólheimum og fyrri kona hans Ingunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1885 á Brunnum í Suðursveit, d. 18. júní 1918 á Eiði.

Börn Ingunnar og Einars:
1. Ásgeir Einarsson ráðsmaður, bóndi, síðan iðnverkamaður í Reykjavík, f. 14. febrúar 1907 á Horni í Bjarnanessókn í A-Skaft., d. 23. desember 1983.
2. Óskar Hafsteinn Einarsson, f. 6. september 1908 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 27. nóvember 1932.
3. Nanna Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 14. janúar 1910 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 3. janúar 1997. Hún var alin upp á Skeggjastöðum í Gerðahreppi hjá Guðnýju Gísladóttur og Guðmundi Guðmundssyni skósmið.
4. Guðlaug Lovísa Einarsdóttir húsfreyja á Fáskrúðsfirði, f. 14. janúar 1911 á Gjábakka, síðast á Árbliki í Fáskrúðsfirði, d. 16. maí 1993.
5. Helga Einarsdóttir húsfreyja á bænum Berufirði í Berufirði, S-Múl., f. 10. október 1912 á Nýlendu, d. 13. febrúar 1993.
6. Páll Vídalín Einarsson bifreiðastjóri, f. 20. nóvember 1914 á Kirkjubæ, d. 13. desember 1988.
7. Svanhvít Kristín Einarsdóttir vinnukona, f. 18. desember 1916 í París, d. 20. maí 1934.
8. Kristinn Ingi Einarsson, f. 10. júní 1918 á Eiðinu, d. 13. nóvember 1945. Hann var fóstraður hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur á Reynivöllum í Suðursveit, A-Skaft., bjó síðast á Hraunbóli í V-Skaft.

Börn Einars Þórðarsonar og Guðrúnar Gísladóttur, síðari konu hans og hálfsystkini Páls:
9. Sveinbjörn Þórarinn Einarsson bifreiðastjóri, f. 19. júlí 1919 á Jaðri, d. 8. desember 1995.
10. Þuríður Einarsdóttir, f. 15. september 1920 á Litlu-Grund, dó óskírð, en nefnd.
11. Þuríður Einarsdóttir, f. 22. maí 1922 á Litlu-Grund, síðar húsfreyja í Reykjavík, d. 14. mars 1992.
12. Ingunn Eyrún Einarsdóttir, f. 28. júní 1925 á Litlu-Grund, finnst ekki síðan og mun hafa dáið ung.

Páll bjó með foreldrum sínum á Kirkjubæ 1914-1915, í París 1916 og á Eiðinu 1917 og 1918. Þau voru síðustu íbúar þar.
Hann missti móður sína, er hann var á fjórða árinu.
Páll var sendur í fóstur til Steinunnar Jónsdóttur móðurmóður sinnar að Krossalandi í Lóni. Þar var hann 1920.
Hann hóf sjálfstæðan bifreiðaakstur, en síðan ók hann hjá Kaupfélagi A-Skaftfellinga.

I. Kona Páls Vídalíns var Sigurborg Kristín Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. júlí 1922, d. 24. september 1957. Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson frá Holtaseli á Mýrum í A-Skaft, trésmiður, brúarsmiður á Höfn, f. 23. mars 1883, d. 20. september 1967, og kona hans Kristín Arngrímsdóttir frá Krossbæ í Nesjum, A-Skaft, húsfreyja, f. 8. júlí 1890, d. 4. apríl 1924.
Börn þeirra:
1. Kristinn Auðbergur Pálsson bifreiðastjóri, f. 20. júlí 1941, d. 14. febrúar 2017. Sambýliskona hans var Guðný Jónsdóttir.
2. Svanhvít Pálsdóttir húsfreyja á Höfn við Hornafjörð, f. 6. janúar 1945. Maður hennar er Ingiberg Hraundal Jónsson.
3. Sigurður Pálsson, f. 20. maí 1949, d. 5. ágúst 1984. Ókv.
4. Jón Ingi Pálsson vinnuvélastjóri, f. 9. janúar 1953. Kona hans er Erla Einarsdóttir.
5. Sigurborg Sigurðardóttir húsfreyja, lyfjafræðingur, f. 15. febrúar 1957. Hún er kjörbarn Sigurðar Kristins Kjartanssonar, f. 1926 og Arnhildar Jónsdóttur, f. 1931. Maður hennar er Sigurður Þorsteinsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.