Páll Guðmundsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 11:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 11:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1765 og lést 5. ágúst 1810.
Foreldrar hans voru líklega Guðmundur Pálsson, sem var bóndi á Vilborgarstöðum 1762 og ókunn kona hans.

Páll var bóndi, ekkill, á Vilborgarstöðum 1801 með Jón son sinn 14 ára, Guðmund „óegta‟ þriggja ára og ráðskonuna Ingibjörgu Hreiðarsdóttur bústýru, sögð ekkja, var fráskilin.
„5. ágúst drekkti sér í sjó út úr drykkjuskap Páll Guðmundsson 40 ára ekkjumaður búandi á Vilborgarstöðum, hafði verið í hjónabandi 4 ár, en 17 ár ekkjumaður, fannst upprekinn 10. ejusdem (þ.e. sama mánaðar), grafinn 12. ejusdem“.

I. Kona Páls, (20. júlí 1788), var Emerentíana Jónsdóttir húsfreyja, f. 1762, d. 29. september 1792.
Börn þeirra hér:
1. Jón Pálsson sjómaður á Vilborgarstöðum, f. 20. febrúar 1788 í Kvernhól (Kornhól), d. 2. ágúst 1864.
2. Guðmundur Pálsson, f. 19. október 1789, d. 30. október 1789 úr ginklofa.
3. Ossilá Pálsdóttir, f. 28. júlí 1791 í Kornhól, d. 2. ágúst 1791 úr „landfarsótt“.
4. Erlendur Pálsson, f. 21. september 1792 í Kornhól, d. 28. september 1792, jarðs. með móður sinni.

II. Bústýra Páls var Ingibjörg Hreiðarsdóttir húsfreyja, f. 1762.
Barn þeirra hér:
5. Guðmundur Pálsson, f. 2. janúar 1798. Var með foreldrum sínum 1801, þriggja ára, en finnst ekki á mt. 1816, (dánarskýrslur skortir 1813-1816).


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.