Pálína Árnadóttir (Burstafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Pálína

Einarína Pálína Árnadóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, fæddist 27. maí 1914 á Stuðlum í Norðfirði og lézt 19. desember 1993 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Árni Oddsson, f. 1888, og k.h. Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 1883.

Barnsfaðir: Jón Kristjónsson, f. 7. febr. 1912 í Reykjavík, d. 10. apríl 1933.
Barn þeirra: Jón Gunnar Kristján skrifstofustjóri, f. 10. sept. 1933, d. 14. okt. 1995.

Maður, skildu: Sigurður Óskar Ólafsson verzlunarmaður, f. 1913, d. 16. nóvember 1955. For.: Ólafur Ó. Lárusson, f. 1884 og k.h. Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir, f. 1883.
Barn: Erla, f. 1939 í Eyjum.

Maður II (20. apríl 1946): Jónas Sigurðsson skólastjóri Stýrimannaskólans, f. 13. marz 1911 í Ási í Garðahreppi, d. 7. marz 2002. For.: Sigurður bóndi í Ási, f. 10. jan. 1863 í Stóradalssókn u. Eyjafjöllum, drukknaði 24. febr. 1912, Jónasar bónda að Hóli u. Eyjafjöllum, Þorleifssonar og konu Sigurðar í Ási, Guðrúnar húsmóður, f. 7. febr. 1879 í Víðinesi á Kjalarnesi, d. 7. júlí 1973, Árna bónda í Móum á Kjalarnesi, Björnssonar.
Börn:

  1. Árni Björn, verkfræðingur, f. 19. júlí 1946 í Hafnarfirði,
  2. Baldur, verkfræðingur, f. 4. jan. 1949 í Reykjavík,
  3. Ebba Sigurbjörg, bankamaður, f. 13. júlí 1952 í Reykjavík.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.