Orðaforði og málvenjur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Algengt var að eldri Vestmannaeyingar töluðu með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna og er flámæli nú nær óþekkt. Á einangruðum stöðum eins og Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til. Nokkur dæmi um slík orð eru:

  • útsuður - suðvestur, í átt að eyjunum sem eru þar, Suðurey, Brandi , og fleiri.
  • landsuður - merkir á sama hátt suðaustur.
  • landnorður - norðaustur, í átt að meginlandi Íslands. Í landnorðri eru Elliðaey og Bjarnarey, því að oftast er miðað við Heimaey í þessum áttalýsingum.
  • útnorður - merkir á sama hátt norðvestur.
  • Áður fyrr var algengt að Eyjamenn töluðu um að hann væri að ganga í lannering sem er afbökun á „landnyrðing“ norðaustanátt. Á sama hátt var talað um útsyning sem er afbökun á „útsynning“ suðvestanátt.
  • Þessi heiti á áttum og vindáttum eru reyndar vel þekkt um nær allt land og eru ævagömul. Landnámsmenn tóku þessar áttakenningar með sér frá Noregi þar sem þær voru bundnar við staðhætti á vesturströndinni og áttu þær því misjafnlega vel við hér á landi. Í Vestmannaeyjum falla þær einkar vel að staðháttum og hafa því lifað hér góðu lífi, allt fram á okkar daga en þessi áttaheiti eru minna notuð annars staðar á landinu.
  • peyi - ungur strákur. Einnig hefur orðið polli skotið upp kollinum á seinni árum, líklega fyrir áhrif ofan af fastalandinu.
  • pæja - ung stúlka. Samanber Pæjumótið í fótbolta. Þetta orð er þó mun yngra í málfari Eyjamanna en peyi og áður fyrr var ævinlega talað um stelpur..
  • lagga - lögga. Sérstök mynd af orðinu, og á meðal barna er frasinn „lagga tagga táfýla“ oft notaður.
  • tríkot - íþróttagalli. Orðið er komið af frá því ÍBV pantaði íþróttagalla erlendis frá rétt eftir miðja síðustu öld, en allir gallarnir sem komu voru merktir framleiðanda þeirra - Tricot. Frá þeim tíma hafa íþróttagallar af öllum toga hlotið þetta heiti.
  • gæjalegt - tiltölulega nýtt orð í orðaforða Eyjamanna en þar sem aðrir landsmenn nota orðið, eðli þess samkvæmt, yfir karlkynið, gera Eyjamenn engan greinarmun á kynjum og tala gjarnan um að stúlka, sem þeim þykir álitleg, sé gæjaleg.