Októvía Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. október 2022 kl. 17:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. október 2022 kl. 17:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg Októvía Andersen.

Guðbjörg Októvía Andersen húsfreyja og skrifstofukona fæddist 9. febrúar 1943 á Sólbakka, Hásteinsvegi 3 og lést 6. október 2022 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Emil Marteinn Andersen frá Sólbakka, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 31. júlí 1917, d. 17. mars 1995, og kona hans Þórdís Jóelsdóttir frá Sælundi, húsfreyja, f. 15. febrúar 1916, d. 17. júlí 1996.

Börn Þórdísar og Emils:
1. Guðbjörg Októvía Andersen húsfreyja og skrifstofukona á sýsluskrifstofunni, f. 9. febrúar 1943. Maður hennar er Borgþór Eydal Pálsson.
2. Jóhanna Emilía Andersen húsfreyja, saumakona og leikskólastarfsmaður, f. 4. júlí 1944. Maður hennar er Kristján Bogason.
3. Júlía Petra Andersen húsfreyja og innanhúsarkitekt, f. 24. júní 1949. Maður hennar er Hjalti Elíasson.
4. Jóel Þór Andersen skipstjóri, f. 6. september 1950. Kona hans er Þuríður Jónsdóttir.
5. Mardís Malla Andersen byggingafræðingur, f. 2. apríl 1959. Sambýlismaður var Birgir Jónsson. Maður hennar, (skildu), var Sigurður Gíslason.

Októvía var með foreldrum sínum í æsku, með þeim á Sólbakka, síðan á Heiðarvegi 13.
Hún lauk unlingaprófi á Laugarvatni 1958, nam um skeið í Iðnskólanum, en lauk svo verslunarprófi í Framhaldsskólanum um 1984.
Októvía vann við Safnahúsið og síðan vann hún skrifstofustörf á sýsluskrifstofunni, m.a. var hún þinglýsingafulltrúi þar.
Hún átti sæti í bæjarstjórn um skeið og var formaður slysavarnadeildarinnar Eykindils í fimm ár.
Þau Borgþór giftu sig 1963, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Heiðarvegi 13 við giftingu 1963 og við fæðingu Ragnheiðar 1967, á Bröttugötu 8 frá 1971.
Októvía lést 2022.

I. Maður Guðbjargar Októvíu, (14. desember 1963) er Borgþór Eydal Pálsson vélvirkjameistari, vélstjóri, verkstjóri, f. 27. september 1941.
Börn þeirra:
1. Þórdís Borgþórsdóttir húsfreyja, svævingahjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 5. ágúst 1963 á Sælundi. Fyrrv. maður hennar Gunnar Þór Gunnarsson. Sambúðarmaður hennar Oddur Már Gunnarsson.
2. Ragnheiður Borgþórsdóttir húsfreyja, förðunarfræðingur, kennari í Eyjum, f. 28. maí 1967. Maki hennar, skildu, Brynjar Kristjánsson. Maki er Sindri Óskarsson.
3. Emilía Borgþórsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, iðnhönnuður í Hafnarfirði, f. 20. október 1973. Maður hennar Karl Guðmundsson.
4. Páley Borgþórsdóttir húsfreyja, héraðsdómslögmaður, lögreglustjóri, f. 6. febrúar 1975. Maður hennar er Arnsteinn Ingi Jóhannsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.