Oddur Guðmundsson (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 20:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 20:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Oddur Guðmundsson fæddist 28. júní 1860 í Litlakoti og hrapaði til bana 23. júní 1871.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson tómthúsmaður, sjómaður, f. 30. mars 1827, d. 16. febrúar 1865, og kona hans Guðríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 1826, d. 18. nóvember 1901.

Oddur var með foreldrum sínum í Litlakoti við fæðingu, á Kirkjubæ 1864-1865. Faðir Odds lést, er hann var á 5. ári. Honum var komið í fóstur hjá Tíla Oddssyni móðurbróður sínum í Norðurgarði 1865-dd.
Oddur hrapaði úr Hamrinum 1871.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.