Oddsstaðir eystri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2012 kl. 08:40 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2012 kl. 08:40 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd tekin 1937

Húsið Oddsstaðir eystri stóð á austanveðri Heimaey, vestur af Kirkjubæjum. Einar Vilhjálmsson trésmiður ættaður frá Þuríðarstöðum í Fljótsdal byggði húsið árið 1927 og bjó þar ásamt konu sinni Halldóru S. Sigurðardóttur frá Klömbru Austur-Eyjafjöllum, börn þeirra; Ingibjörg Þórstína, Sigurjón og Guðbjörg.

Árið 1962, eignuðust húsið Jóel Guðmundsson frá Háagarði og Guðrún R. Pétursdóttir frá Kirkjubæ.

Húsið varð eldi að bráð, þegar hraunbomba lenti á því á fjórða degi eldgossins 1973.

Við hænsnakofann á Oddsstöðum árið 1936. Talið frá vinstri: Vilborg Guðjónsdóttir Oddsstöðum, Sigurjón Einarsson Eystri Oddsstöðum og Guðrún Kristófersdóttir Bjarmahlíð
Mynd tekin 25.01.1973
Jóel og Guðrún Rannveig, síðustu ábúendur á Oddsstöðum eystri.

Myndasafn