Oddný Guðrún Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. október 2016 kl. 10:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. október 2016 kl. 10:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Oddný Guðrún Guðmundsdóttir''' frá Uppsölum, húsfreyja í Reykjavík fæddist 17. nóvember 1897 og lést 9. desember 1980.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðmun...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Oddný Guðrún Guðmundsdóttir frá Uppsölum, húsfreyja í Reykjavík fæddist 17. nóvember 1897 og lést 9. desember 1980.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson bóndi, verkamaður í Uppsölum, f. 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1950, og kona hans Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 27. janúar 1930.

Börn Guðmundar og Guðrúnar voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.

Oddný Guðrún kom að Uppsölum frá Steinum u. Eyjafjöllum 1913, var með fjölskyldu sinni í lok ársins, var vinnukona á Skaftafelli 1914, í London 1915.
Hún var vinnukona hjá Gísla Jónssyni formanni í Uppsölum 1920, fluttist til Reykjavíkur 1921. Þau Guðjón eignuðust þrjú börn.
Oddný lést 1980.

Maður Oddnýjar Guðrúnar var Guðjón Sveinbjörnsson vélstjóri á Sæbjörgu, f. 9. desember 1899.
Börn þeirra:
1. Guðný Guðjónsdóttir húsfreyja, veitingahúsrekandi á Mokka í Reykjavík, f. 10. júlí 1927.
2. Guðmundur Einar Guðjónsson kafari, sjókortagerðarmaður, f. 23. mars 1931, d. 23. apríl 1980.
3. Hulda Guðjónsdóttir húsfreyja, kaupmaður, síðast á Vopnafirði, f. 3. nóvember 1933, d. 12. apríl 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.