Oddný Erlendsdóttir (Dvergasteini)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. febrúar 2017 kl. 15:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. febrúar 2017 kl. 15:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Oddný Erlendsdóttir (Dvergasteini)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Oddný Erlendsdóttir húsfreyja í Dvergasteini fæddist að Skíðabakka í A-Landeyjum 11. október 1883 og lést í Reykjavík 9. ágúst 1969.
For.: Erlendur Erlendsson bóndi á Skíðabakka, Austurbæ, f. 7. september 1833 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu í A-Landeyjum, d. 19. nóvember 1904 á Skíðabakka, og k.h. Oddný Árnadóttir húsfreyja á Skíðabakka, f. 10. október 1839 í Suður-Móeiðarhvolshjáleigu, d. 31. mars 1905.

Oddný var systir Jórunnar í Ólafshúsum og Guðrúnar vinnukonu þar.

Árið 1920 var Oddný búsett í Dvergasteini, á Bjarmalandi 1925.
Í kreppunni 1929 komust þau Magnús í fjárhagsþrot. Þau fluttust síðar til Reykjavíkur og bjuggu lengst af að Laugavegi 86.

Maður Oddnýjar var Magnús Magnússon skipasmiður og bæjarfulltrúi, f. 6. okt. 1882, d. 22. október 1961.
Börn þeirra:
1. Hulda, búsett í Reykjavík, f. 29. júní 1913, d. 6. nóvember 1998.
2. Marta Sonja , búsett í Reykjavík, f. 19. nóvember 1914, d. 13. október 2010.
3. Magnús Adolf, bifvélavirki, búsettur í Kópavogi, f. 20. júlí 1916, d. 25. desember 1996.
4. Þórdís, f. 15. september 1917, d. 23. apríl 1939.
5. Jórunn Lilja, f. 5. desember 1919, d. 14. febr. 2008.
6. Erlendína Guðrún Magnúsdóttir, f. 18. júní 1921 í Dvergasteini, d. 21. september 1922.
7. Erlendur, f. 13. mars 1923, d. 9. október 2003.
8. Guðbjört, f. 31. maí 1924.
9. Elísabet Fjóla Magnúsdóttir, f. 24. nóvember 1925 á Bjarmalandi, d. 28. ágúst 2004. Hún varð kjörbarn Helgu Eggertsdóttur húsfreyju og Kristófers Péturs Eggertssonar skipstjóra á Akranesi.
10. Fanney Magnúsdóttir, f. 3. mars 1928 á Bjarmalandi, d. 4. október 2013.


Heimildir