„Oddgeirshólar (Hólagötu)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Oddgeirshólar færð á Oddgeirshólar (Hólagötu))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 15. júní 2007 kl. 16:01

Oddgeirshólar

Húsið Oddgeirshólar stendur við Hólagötu 40. Friðfinnur Finnsson, kafari og kaupmaður í Eyjabúð, byggði húsið og færði nafnið yfir á það frá því húsi er hann bjó í lengst af og stendur nokkru ofar og sunnar, við Höfðaveg. Það hús var síðan nefnt Stuðlaberg. Á jarðhæð Oddgeirshóla var lengi vel starfrækt matvöruverslun en nú eru þar til húsa Tannlæknastofa Heimis og nuddstofa. Á efri hæð hússins býr Kristmann Karlsson kaupmaður ásamt konu sinni, Kristínu Bergsdóttur.