Oddgeir Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2005 kl. 08:36 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2005 kl. 08:36 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Oddgeir Kristjánsson fæddist í Vestmannaeyjum 16. nóvember 1911 og lést langt um aldur fram árið 1966. Á barnsaldri hneigðist hugur Oddgeirs til tónlistar og á þrettánda ári var hann farinn að leika á trompet í lúðrasveit í Eyjum.

Tónlistarmaður

Fyrir hvatningu góðra manna fór Oddgeir til Reykjavíkur í fiðlunám til Þórarins Guðmundssonar. Það stóð þó aðeins í einn vetur því heimskreppan skall á og lokaði leiðum. Veturinn 1944-45 var hann við tónfræðinám hjá Róbert A. Ottóssyni. Það varð honum drjúgt veganesti.

Tónskáld

Oddgeir samdi þegar á unga aldri lög sem hafa verið vinsæl með þjóðinni, en mörg laga hans voru fyrst kynnt á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Oddgeir fékk til liðs við sig snjalla textahöfunda, vini sína Árna úr Eyjum og Ása í Bæ auk Lofts Guðmundssonar, en einnig samdi Oddgeir lög við ljóð annarra skálda.

Dæmi um ógleymanleg lög eftir Oddgeir eru Vor við sæinn, Gamla gatan, Ég veit þú kemur, Ágústnótt, Ship ohoj og Sólbrúnir vangar

Drifkraftur í tónlistarlífið

Um áratuga skeið var Oddgeri drifkraftur í tónlistarlífi Vestmannaeyinga. Hann var einn af forgöngumönnum um stofnun Lúðrasveitar Vestmannaeyinga og stjórnandi hennar til dauðadags. Síðustu tíu ár ævinnar var hann tónmenntakennari í Barnaskóla Vestmannaeyja. Það gaf honum tækifæri til að örva söng og gleði sem Eyjamönnum er í blóð borin.