Næturfjör

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 20:55 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 20:55 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1989 1990 1991

Lagið Næturfjör var Þjóðhátíðarlagið árið 1990.

Hamrarnir háu
í heillandi tign,
tjöldin og tjörnin
svo töfrandi lygn.
Lokkandi laða
í logunum skýrð.
Hvern sem að kemur
í klettanna dýrð.
Hér finn ég framandi
og funheita glóð,
sem eldur í æðunum
ólgar mitt blóð.
Danslagið dunar
við dillandi söng.
Nú fer að nátta
og nóttin er löng.
Sælt er að sitja við
sjafnareld þann,
sem umvefur ungan
og ástfanginn mann.
Komdu minn kæri
og kysstu mig fljótt.
Eigum við vinur
að dansa í nótt.
Viðlag:
Lífsgleðin ljómar
við logandi bál.
Kvöldsöngva kyrjar
hver einasta sál.
Lífinu lætur
að líða svo fljótt.
Dönsum og dönsum
í dalnum í nótt.
Lag: Ólafur M. Aðalsteinsson
Texti: Guðjón Weihe