Nikolína Rósa Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. janúar 2021 kl. 14:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. janúar 2021 kl. 14:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Nikolína Rósa Magnúsdóttir''' húsfreyja fæddist 7. apríl 1932 á Tangagötu 31 á Ísafirði.<br> Foreldrar hennar voru Magnús Eiríksson (vélstjóri)|Magnús Eiríks...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Nikolína Rósa Magnúsdóttir húsfreyja fæddist 7. apríl 1932 á Tangagötu 31 á Ísafirði.
Foreldrar hennar voru Magnús Eiríksson frá Háfshóli í Djúpárhreppi, Rang., vélstjóri, síðast í Hraunbúðum, f. 24. júní 1899, d. 3. febrúar 1985, og kona hans Jóna Kristín Guðjónsdóttir frá Ármúla í Nauteyrarhreppi, húsfreyja, síðast á Hlíðarvegi 16 á Ísafirði, f. 6. mars 1907 á Ísafirði, d. 9. júní 1980.

Nikolína Rósa var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann á ljósmyndastofu og í bakaríi á Ísafirði, fluttist til Eyja 1961.
Nikolína Rósa vann með heimilinu á Sjúkrahúsinu og síðan í Hraunbúðum í 30 ár.
Þau Tryggvi giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Brekkugötu 9.
Tryggvi lést 2014.
Nikolína Rósa dvelur í Hraunbúðum.

I. Maður Nikolínu Rósu, (13. apríl 1963), var Tryggvi Jónsson frá Mörk, vélsmíðameistari, yfirverkstjóri, f. 11. mars 1925 á Ekru, d. 28. júlí 2014.
Börn þeirra:
1. Magnús Tryggvason íþróttafræðingur, stálsmiður. Hann er kennari í íþróttum og málmsmíðum við Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 18. desember 1964. Kona hans Ragnhildur Eiríksdóttir.
2. Helga Tryggvadóttir náms- og starfsráðgjafi í Reykjavík, f. 22. febrúar 1966. Barnsfaðir hennar Sigurður Friðhólm Gylfason. Barnsfaðir hennar Gísli Matthías Gíslason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.