Niels Stephan Ringsted

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. mars 2022 kl. 17:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. mars 2022 kl. 17:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Niels Stephan Ringsted, nefndur Stefán Ringsted í Eyjum, verslunarstjóri í Godthaab fæddist 18. desember 1806 í Kaupmannahöfn og lést 6. júní 1919.
Foreldrar hans voru Peter Ringsted yfirstjórnandi í Kaupmannahöfn, f. 1774 í Danmörku, d. 30. mars 1844, og Rebecca Eliane Wideröe Ringsted, f. 1786, d. 9. nóvember 1848.

Ringsted var assistent við Godthaabsverslun hjá Christian Jakob Kemp verslunarstjóra, en eftir lát Kemps 17. apríl 1839 varð hann verslunarstjóri skamma stund. Hann afhenti stjórnina Jess Thomsen Christensen 23. apríl 1839. Jes var verslunarstjóri um hríð og við tók líklega F.L. Hansen og stýrði til ársins 1846.
Ringsted fór með fjölskylduna til Kaupmannahafnar 1844, var kominn til Reykjavíkur 1845, var þar faktor í Knudtsonshúsi. Hann sneri til Eyja með fjölskylduna 1846 og tók við verslunarstjórn af F.L. Hansen, en fór alfarinn til Hafnar með fjölskylduna 1847.

Fyrri kona Ringsteds var Helga Austmann. Þau bjuggu í Godthaab 1833, í „JónshúsiSteinshúsi“ 1836 og 1837, en voru í Ringstedshúsi við andlát Helgu 1839.
Hann bjó í Godthaab með Helgu síðari við sóknarmannatal í lok árs 1839 og þar bjuggu þau 1840 og 1841, en í „PétursborgSteinshúsi“ 1842 og 1843.
Þrjár stúlkur eignuðust þau 1840-1842, þar af voru tvíburar. Börnin lifðu öll frumbernsku sína.

I. Barnsmóðir hans var Þuríður Björnsdóttir frá Steinsstöðum, f. 13. desember 1813, d. 16. október 1837. (Ringsted neitaði).
Barnið var
1. Stefán Þuríðarson, f. 21. ágúst 1833, d. 29. ágúst 1833 úr ginklofa.

II. Barnsmóðir Niels Stephan var Guðríður Hjartardóttir frá Hvoli í Mýrdal, húskona, vinnukona, f. þar 17. apríl 1901, d. 12. júní 1866 á Dyrhólum í Mýrdal.
Barn þeirra:
2. Stefán Stefánsson Ringsted húsmaður, vinnumaður, niðursetningur, f. 15. apríl 1836 á Norður-Hvoli í Mýrdal, d. 9. október 1919.

Niels Stephn Ringsted var tvíkvæntur.
III. Fyrri kona hans, (30. september 1833), var Helga Jónsdóttir Austmann húsfreyja, f. 1812, d. 17. maí 1839.
Þau Helga voru barnlaus.

IV. Síðari kona Ringsteds, (1. október 1839), var Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 1801.
Börn þeirra hér:
2. Rebekka Beate, f. 8. september 1840, tvíburi.
3. Helga Sigurlaug, f. 8. september 1840, tvíburi.
4. Emilie Ingibjörg, f. 8. apríl 1842.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntal 1910.
  • Prestþjónustubækur.