Narfi VE-108

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Narfi VE-108
[[Mynd:|200px]]
Skipstjóri:
Útgerð: Narfi ehf
Þyngd: 257 brúttótonn
Lengd: 29,57m
Breidd: 6,9m
Ristidýpt: 5,88m
Vélar: Callesen 801 hö, 589 kW árg. 1982.
Siglingahraði: sjómílur
Tegund: Togari
Bygging: 1964, Trondheim, Noregi.

Narfi VE-108 er 257 brúttótonna stálskip. Það var smíðað í Trondheim, Noregi, árið 1964 hjá Örens Mekanik Verksted. Upphaflega var það 216 brúttólestir og gekk þá undir nafninu Bára SU-526. Síðar var það selt til Grindavíkur og fékk það þá skráningarnúmerið GK-24.

Þann 19. ágúst 1978 var skipið selt til Silfurness h/f á Hornafirði, þar sem það gekk undir nafninu Gissur hvíti SF-55. Það var svo selt til Særúnar h/f á Blönduósi þann 4. nóvember 1985, sem hélt nafninu Gissur hvíti en skráningarnúmerið varð HU-35.

Callesen 800 hestafla vél var sett í skipið árið 1983. Fram að því hafði verið í því 450 hestafla Stork díesel vél.

Árið 2006 eiga Viðar Elíasson og Guðmunda Bjarnadóttir fyrirtækið Fiskvinnslu VE. sem á bátinn Narfa.